Mynd sem tengist textanum
Heimilisfang
Austurvegi 2, 240 Grindavík
Símanúmer
426 8675
Bílastæði
Hljóðkerfi
Safnaðarheimili
Salerni
Streymi
Aðgengi
Fjöldi: 340
Sókn
Grindavíkursókn

Grindavíkurkirkja

Fyrsta skóflustungan var tekin að Grindavíkurkirkju þann 5. nóvember árið 1972. Kirkjan var vígð nærri tíu árum síðar af Pétri Sigurgeirssyni, biskupi Íslands, eða 26. september árið 1982. Ragnar Emilsson, arkitekt, teiknaði kirkjuna. Kirkjan er hvítmáluð með háum turni og trónir kross efst á turninum. Kirkjan tekur 240 manns í sæti og er safnaðarheimilið sambyggt kirkjunni og þar geta setið um 150 manns. Altaristaflan er gerð eftir altaristöflu gömlu kirkjunnar sem Ásgrímur Jónsson, listmálari, málaði. Myndin er mósaíkverk og sýnir Jesú kyrra vind og sjó. Þýska fyrirtækið Oidtmann sá um það verk. Skírnarfonturinn er úr marmara. Það var Ásmundur Sveinsson, myndhöggvari, sem gerði hann.

Ljósmynd tók Rüdiger Þór Seidenfaden.

Vígðir þjónar
Mynd sem tengist textanum
  • Elínborg Gísladóttir
  • Sóknarprestur