
- Jónína Ólafsdóttir
- Sóknarprestur
Gamla kirkjan í Krýsuvík varð eldi að bráð aðfaranótt 2. janúar árið 2010. Kirkjan var endurreist og var smíðin á vegum Iðnskólans í Hafnarfirði, síðar Tækniskólans, og gafst þar tækifæri til að kenna gömul vinnubrögð við timbursmíði. Þjóðminjasafn Íslands kom einnig að þessu verkefni. Krýsuvíkurkirkja var úr timbri og af eldri gerð turnlausra kirkna, reist árið 1857 af Beinteini Stefánssyni smið. Viðamiklar viðgerðir hófust árið 1986 og hún þá færð til upprunalegrar gerðar.
Útveggir voru með tjargaðri listasúð og bárujárn á þaki. Engir gamlir kirkjumunir hafa varðveist og voru kirkjubekkir, altari og prédikunarstóll af nýlegri og einfaldri gerð.
Endurreist Krýsuvíkurkirkja var vígð á hvítasunnudag árið 2022. Kirkjan er nákvæm eftirmynd þeirrar sem brann árið 2010. Kirkjan tekur 40 manns í sæti.


