- Fjölnir Ásbjörnsson
- Prestur

Heimilisfang
Bílastæði
Safnaðarheimili
Salerni
Streymi
Aðgengi
Fjöldi: 90
Prestakall
Hnífsdalskapella
Hnífsdalskapella er í Ísafjarðarprestakalli. Guðsþjónustur fóru fram í barnaskólanum til ársins 1953, þegar hann fauk í heilu lagi af grunninum í miðri kennslustund í febrúar það ár. Ekki urðu slys á fólki. Annar skóli var reistur á sama stað og kapella með. Kór hennar er í austurenda hússins og orgelstúkan í vesturendanum. Á milli eru tvær kennslustofur, sem opnast með skilveggjum. Þá er hægt að bjóða 160 manns til sætis í kapellunni. Hún var vígð á föstudaginn langa árið 1955. Meðal gripa kapellunnar eru kristslíkan, róðukross, kaleikur og patína úr silfri.
Vígðir þjónar



- Hildur Inga Rúnarsdóttir
- Prestur

- Magnús Erlingsson
- Prófastur Vestfjarðaprófastdæmis