
Kosningar til kirkjuþings
Kosning til kirkjuþings hefst þann 7. maí kl 12:00 og stendur til 12. maí kl 12:00. Kosningarnar eru rafrænar og verður nánari útfærsla á þeim auglýst síðar af kjörstjórn.
Upplýsingar um frambjóðendur til kirkjuþings má nálgast hér að neðan.
Þá er hér að neðan hlekkir á rafræna kjörskrá þar sem kjósendur geta athugað stöðu sína þar.
Á kirkjuþingi eiga sæti 29 fulltrúar kjörnir til fjögurra ára í senn. Eru 12 þeirra úr hópi vígðra, þ.e. presta og djákna og 17 leikmenn.
Ítarlegri upplýsingar um störf kirkjuþings, hlutverk, lög og reglur má nálgast hér á vefsvæði kirkjuþings.
Hvernig er kosið til kirkjuþings?
Á kirkjuþingi sitja 29 þingfulltrúar kosnir leynilegri rafrænni kosningu til fjögurra ára. Leikmenn, sem skulu lögum samkvæmt vera fleiri en vígðir, eru 17 talsins og vígðir 12.
a. Leikmenn
Kjördæmi leikmanna eru níu talsins. Þau ná yfir eitt eða fleiri prófastsdæmi. Úr þremur fjölmennustu kjördæmunum, þ.e. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra og eystra og Kjalarnesprófastsdæmi koma þrír leikmenn úr hverju kjördæmi fyrir sig. Úr Eyjarfjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og Suðurprófastsdæmi koma tveir leikmenn úr hvoru kjördæmi fyrir sig. Úr öðrum kjördæmum kemur einn leikmaður fyrir hvert kjördæmi. Kjörnir eru tveir varamenn í hverju kjördæmi. Þó eru kjörnir þrír í þremur fjölmennustu kjördæmunum.
b. Vígðir
Kjördæmi vígðra manna eru þrjú talsins. Úr Reykjavíkurkjördæmi koma sex vígðir menn og þrír til vara. Úr Skálholtskjördæmi og Hólakjördæmi koma þrír vígðir menn úr hvoru kjördæmi fyrir sig og tveir til vara í hvoru kjördæmi.
c. Áheyrnarfulltrúar með málfrelsi og tillögurétt
Málfrelsi og tillögurétt á fundum kirkjuþings hafa auk kirkjuþingsfulltrúa, biskup Íslands, vígslubiskuparnir í Skálholti og á Hólum, framkvæmdastjóri Þjóðkirkjunnar, fulltrúi guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands og fulltrúi kirkjuþings unga fólksins.
Leikmenn eru kosnir á grunni prófastsdæma, sem eru níu. Reykjavíkurprófastsdæmin tvö auk Kjalarnesprófastsdæmis hafa þrjá fulltrúa hvor. Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi og Suðurprófastsdæmi hafa tvo fulltrúa. Vesturlands-, Vestfjarða-, Austurlands-, og Húnavatns- og Skagaprófastsdæmi hafa einn fulltrúa.
Reykjavík og nágrenni hafa sex fulltrúa úr röðum vígðra. Þrír eru svo kosnir úr Skálholtsbiskupsumdæmi og aðrir þrír úr Hólabiskupsumdæmi.
Frambjóðendur til kirkjuþings úr kjördæmum leikmanna (9 kjördæmi)
Eftirtaldir eru í kjöri úr kjördæmum leikmanna (9 kjördæmi)
1. kjördæmi
Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
Þrír fulltrúar og þrír til vara.
Ásgeir Guðmundur Bjarnason
Davíð Stefánsson
Diljá Ámundadóttir Zoega
Eiður Welding
Jónína Rós Guðmundsdóttir
Rúnar Vilhjálmsson
2. kjördæmi
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Þrír fulltrúar og þrír til vara.
Árni Helgason
Guðmundur Jóhann Jónsson Hilmar Einarsson Konráð Gylfason
Ólafur Sverrisson
Steinunn Leifsdóttir
Vera Guðmundsdóttir
3. kjördæmi
Kjalarnesprófastsdæmi
Þrír fulltrúar og þrír til vara.
Ásmundur Friðriksson
Björn Kristinn Jóhannsson
Einar Örn Björgvinsson
Elísabet S. Ólafsdóttir
Guðni Halldórsson
Hjörleifur Þórarinsson
Sigurður Óli Karlsson
4. kjördæmi
Vesturlandsprófastsdæmi
Einn fulltrúi og tveir til vara.
Áslaug I. Kristjánsdóttir
Brynjólfur Guðmundsson
Margrét Bóasdóttir
5. kjördæmi
Vestfjarðarprófastsdæmi
Einn fulltrúi og tveir til vara.
Anna Lilja Steinsdóttir
Ólafur Gestur Rafnsson
Ragnheiður Baldursdóttir
6. kjördæmi
Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi
Einn fulltrúi og tveir til vara.
Álfhildur Leifsdóttir
Berglind Guðmundsdóttir
Trostan Agnarsson
7. kjördæmi
Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi
Tveir fulltrúar og tveir til vara.
Aðalsteinn Már Þorsteinsson
Anna Hafdís Jóhannesdóttir
Auður Thorberg Jónasdóttir
Hjörtur Narfason
Stefán Magnússon
8. kjördæmi
Austurlandsprófastsdæmi
Einn fulltrúi og tveir til vara.
Berglind Hönnudóttir
Einar Már Sigurðarson
Ásmundur Máni Þorkelsson
9. kjördæmi
Suðurprófastsdæmi
Tveir fulltrúar og tveir til vara.
Elvar Eyvindsson
Óskar Magnússon
Sjöfn Þórarinsdóttir
Sólveig Þórðardóttir
Frambjóðendur til kirkjuþings úr kjördæmum vígðra (3 kjördæmi)
Eftirtaldir eru í kjöri úr kjördæmum vígðra (3 kjördæmi)
1. kjördæmi vígðra
Reykjavíkurkjördæmi
Sex fulltrúar og þrír til vara
Bjarni Þór Bjarnason
Baldur Rafn Sigurðsson
Bryndís Malla Elídóttir
Elínborg Sturludóttir
Guðni Már Harðarson
María Rut Baldursdóttir
Sigurður Grétar Sigurðsson
Stefán Már Gunnlaugsson
Þuríður Björg Wiium Árnadóttir
2. kjördæmi vígðra
Skálholtskjördæmi
Þrír fulltrúar og tveir til vara
Axel Árnason Njarðvík
Hilda María Sigurðardóttir
Hildur Inga Rúnarsdóttir
Ingimar Helgason
Ninna Sif Svavarsdóttir
3. kjördæmi vígðra
Hólakjördæmi
Þrír fulltrúar og tveir til vara
Anna Hulda Júlíusdóttir
Benjamín Hrafn Böðvarsson
Jóhanna Gísladóttir
Magnús Magnússon
Sindri Geir Óskarsson
Uppfletting á kjörskrá
Hér að neðan eru hlekkir á rafræna kjörskrá vegna komandi kosninga til kirkjuþings.
Kjördæmi vígðra
1. kjördæmi vígðra, Reykjavíkurkjördæmi
2. kjördæmi vígðra, Skálholtskjördæmi
3. kjördæmi vígðra, Hólakjördæmi
Kjördæmi leikmanna
1. kjördæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi vestra
2. kjördæmi, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
3. kjördæmi, Kjalarnessprófastsdæmi
4. kjördæmi, Vesturlandsprófastsdæmi
5. kjördæmi, Vestfjarðarprófastsdæmi
6. kjördæmi, Húnavatns- og Skagafjarðarprófastsdæmi
7. kjördæmi, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastdæmi