Sálmabók

16b. Lífið gefur Guð

Spila hljóðdæmi
0:00
0:00
hymn notes

1 Lífið gefur Guð, í ljósi býr hann,
líta fær það enginn né skilja það kann.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
fæddur er sem Maríu lítill son.

2 Bjarma slær á tinda, það birtir á jörð,
barn er lagt í jötu og dýr standa vörð.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
fæddur er sem Maríu lítill son.

3 Hjarðmenn fyllast undrun við englanna söng,
eilífðar skín ljósið í myrkranna þröng.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
fæddur er sem Maríu lítill son.

4 Krjúp við jötu barnsins, Guðs kristni í heim,
kom í englaskarann og fagna með þeim.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
fæddur er sem Maríu lítill son.

5 Dýrð sé þér, ó, Guð, í himnanna hæð,
í heiminn að þú komst í fátækt og smæð.
Guð nú finn ég hér, frelsi, líf og von,
fæddur er sem Maríu lítill son.

  • TMargareta Melin 1969 v. 1 og 5 – Kristján Valur Ingólfsson 1975, 1995 – Vb. 2013
  • LLars Åke Lundberg 1970