Forsætisnefnd

Forseti og varaforsetar

Drífa Hjartardóttir er forseti kirkjuþings 2022-2026.

Forseti kirkjuþings er kjörinn til fjögurra ára úr röðum leikmanna á fyrsta fundi nýkjörins kirkjuþings.

Kristrún Heimisdóttir er fyrsti varaforseti kirkjuþings og Steindór R. Haraldsson annar varaforseti.

Varaforsetar kirkjuþings eru kosnir til eins árs í senn og koma þeir einnig úr röðum leikmanna. Kjörtímabil þeirra er frá 28. október 2023 til reglulegs kirkjuþings að hausti 2024.

Forseti og varaforsetar mynda forsætisnefnd kirkjuþings. Er hún forseta til aðstoðar við stjórn þingsins. Forsætisnefnd gerir tillögur um fulltrúa til þeirra trúnaðarstarfa sem kosið skal til á kirkjuþingi.

Kosnir eru tveir skrifarar úr hópi kirkjuþingsmanna.