Úrskurðir í fimm málum liggja fyrir

28. febrúar 2018

Úrskurðir í fimm málum liggja fyrir

Úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar hefur nú úrskurðað í fimm málum sem varða samskipti eins sóknarprests þjóðkirkjunnar við fimm einstaklinga sem starfa á vettvangi kirkjunnar og töldu hann hafa sýnt af sér óviðeigandi háttsemi. Úrskurðarnefnd kemst að þeirri niðurstöðu, að sóknarpresturinn hafi í tveimur málanna gerst sekur um siðferðisbrot samkvæmt 12. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997. Í þremur málum hafnar úrskurðarnefndin því hins vegar að háttsemi sóknarprestsins hafi falið í sér aga- eða siðferðisbrot. Lögum samkvæmt geta málsaðilar skotið máli sínu til áfrýjunarnefndar og skal það gert innan þriggja vikna sbr. 13. gr. framangreindra laga. Ekki er því ennþá ljóst hvort niðurstaða úrskurðarnefndar sé endanleg niðurstaða málsins.
  • Frétt

Sr. Pétur Ragnhildarson

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. jún. 2025
...í Breiðholtsprestakalli
Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní
Bjarki Geirdal Guðfinnsson

Bjarki Geirdal Guðfinnsson ráðinn

12. jún. 2025
…til Breiðholtssprestakalls