9. september 2018
Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga
Opið málþing verður haldið og kyrrðarstundir í tilefni af Alþjóðlegum forvarnardegi sjálfsvíga þann 10. september nk.
Málþing verður haldið í húsakynnum Decode við Sturlugötu 8 milli kl. 15 – 17.
Fundarstjóri: Þorsteinn Guðmundsson, leikari og verkefnisstjóri Bataskóla Íslands
15.00 Opnunarávarp. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.
15.15 Sjálfsvígshugsanir og sjálfsvígstilraunir ungs fólks á Íslandi: Niðurstöður kannana meðal framhaldsskólanema frá 2000 til 2016. Ingibjörgu Eva Þórisdóttur, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu. Sigrún Daníelsdóttir, verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis.
15.40 Píeta samtökin: Fyrstu 6 mánuðirnir í móttöku og meðferð. Edda Arndal, forstöðumaður Pieta á Íslandi.
16.00 Kaffi & kleinur.
16.15 Hugurinn þinn. Alda Karen Hjaltalín, ráðgjafi og fyrirlesari í New York
17.00 Dagskrárlok.
Sjá viðburð á Facebook - https://www.facebook.com/events/228624491143890/
Kyrrðarstundir til minningar um þá sem hafa fallið fyrir eigin hendi verða í Dómkirkjunni, Akureyrarkirkju, Selfosskirkju, Egilsstaðakirkju og Ísafjarðarkirkju að kvöldi mánudagsins 10. september kl. 20 og í Útskálakirkju að kvöldi sunnudagsins 9. september kl. 20.
Dagskráin í Dómkirkunni í Reykjavík 10.september kl. 20.
- Sr. Jóna Hrönn Bolladóttur flytur hugvekju
- Eyþór Ingi Gunnlaugsson flytur tónlistaratriði
- Heiðrún Jensdóttir aðstandandi segir frá reynslu sinni
- Jónas Þórir verður organisti
- Kveikt verður á kertum til minningar um látna ástvini
Allir velkomnir
Sjá viðburð á Facebook - https://www.facebook.com/events/283316462496291/
Eftirtaldir aðilar standa að dagskránni 10.september
• Embætti landlæknis
• Geðhjálp
• Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
• Hugarafl
• Landspítalinn – geðsvið
• Minningarsjóður Orra Ómarssonar
• Ný dögun, stuðningur í sorg
• Pieta samtökin
• Rauði krossinn
• Þjóðkirkjan