Kirkjubæjarklaustursprestakall laust til umsóknar

10. ágúst 2019

Kirkjubæjarklaustursprestakall laust til umsóknar

Þykkvabæjarklausturskirkja í Álftaveri er ein kirknanna í prestakallinu. Fráfarandi sóknarprestur, sr. Ingólfur Hartvigsson, tók myndinaBiskup Íslands auglýsir laust til umsóknar embætti sóknarprests í Kirkjubæjarklaustursprestakalli, Suðurprófastsdæmi. Skipað er í embættið frá 15. nóvember 2019 til fimm ára.

Um val á umsækjendum er vísað til starfsreglna kirkjuþings um val og veitingu prestsembætta nr. 144/2016 og um presta nr. 1011/2011, svo og leiðbeinandi reglna biskups Íslands frá 2017 fyrir umsækjendur um laus prestsembætti. Tengla á þessar heimildir er að finna ofar á síðu þessari. Með því að sækja um embættið staðfesta umsækjendur að þeir hafi átt þess kost að kynna sér þessar reglur.

Í Kirkjubæjarklaustursprestakalli eru fjórar sóknir, Grafar-, Langholts-, Prestsbakka- og Þykkvabæjarklausturssóknir. Sóknir prestakallsins eru á samstarfssvæði með sóknum Víkurprestakalls í Suðurprófastsdæmi, þ.e. Ásólfsskála-, Eyvindarhóla-, Reynis-, Skeiðflatar-, Stóra-Dals og Víkursóknum.

Vísað er til þarfagreiningar sókna prestakallsins varðandi frekari upplýsingar um starfið og starfsumhverfið. Þarfagreiningin er birt hér að neðan í framhaldi af auglýsingunni.

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Kirkjubæjarklaustursprestakalls kýs prest úr hópi framangreindra umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. fyrrgreindar starfsreglur um val og veitingu prestsembætta.

Umsækjendur geri skriflega grein fyrir starfsferli, samskiptahæfileikum og öðru því sem þeir óska eftir að taka fram. Umsókn skal fylgja staðfest afrit af prófskírteini ásamt einkunnum svo og upplýsingar um starfsþjálfun eftir því sem við á. Einnig skal fylgja staðfesting á annarri menntun og þjálfun eftir atvikum.

Umsækjendum ber að skila greinargerð, að hámarki 500 orð, um framtíðarsýn og væntingar er varða embættið.

Umsækjendum ber að fylla út eyðublað þar sem biskupi er heimilaður aðgangur að tilteknum upplýsingum úr sakaskrá um viðkomandi umsækjanda, sbr. 3. gr. starfsreglnanna. Skal undirrituð heimild þar um fylgja umsókninni. Tengil á eyðublaðið er að finna ofar á síðu þessari.

Heimilt er að óska eftir því að almennar prestskosningar fari fram samkvæmt 15. gr. framangreindra starfsreglna um val og veitingu prestsembætta. Skrifleg ósk um kosningu skal hafa borist biskupi eigi síðar en hálfum mánuði eftir að prestakallið var auglýst laust til umsóknar.

Um embættið gilda lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996, starfsreglur er kirkjuþing setur og samþykktir um innri málefni kirkjunnar. Er einkum vísað til starfsreglna um presta.

Áskilinn er réttur til að skilgreina skyldur sem embættinu tilheyri við prófastsdæmið og biskupsstofu eða önnur kirkjuleg stjórnvöld.

Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Embættið er auglýst með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Kirkjubæjarklaustursprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu hljóti þær samþykki kirkjuþings.

Um laun og önnur kjör fer samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Prestakallinu fylgir prestssetur á Kirkjubæjarklaustri og er presti skylt að hafa þar aðsetur og lögheimili. Vísað er til starfsreglna um prestssetur og aðrar fasteignir þjóðkirkjunnar nr. 950/2009 og draga að haldsbréfi um prestssetrið, sem fylgir auglýsingu þessari.

Nánari upplýsingar um embættið, starfskjör og helstu lög og reglur sem um starfið gilda eru veittar hjá sr. Halldóru Þorvarðardóttur, prófasti Suðurprófastsdæmis s. 862 6585 og á Biskupsstofu, s. 5284000.

Umsóknarfrestur um embættið er til miðnættis mánudaginn 9. september 2019.
  • Auglýsing

  • Embætti

  • Frétt

  • Menning

  • Sálgæsla

  • Skipulag

  • Menning

Prestar og djáknar 2024

Presta- og djáknastefnan var sett í gær

17. apr. 2024
...í Stykkishólmi
Garðakirkja á Álftanesi - mynd: hsh

Þau sóttu um

17. apr. 2024
...Garðaprestakall
Sr. Guðmundur og sr. Guðrún.jpg - mynd

Fyrri umferð biskupskosninga lokið

16. apr. 2024
...kosið verður á milli sr. Guðmundar Karls og sr. Guðrúnar