Kraftur góðra hugmynda

8. apríl 2020

Kraftur góðra hugmynda

Krókusar eru vormerki í Laugarnesinu sem og annars staðar

Á þessari veirutíð skjóta ýmsar hugmyndir upp kollinum í kirkjustarfi eins og þau vita sem fylgjast með.

Kirkjan.is vekur athygli á góðu tiltæki þeirra í Laugarnessöfnuði sem getur verið öðrum hvatning eða uppspretta að enn öðrum hugmyndum. Þau hvetja fjölskyldur í sókninni til að taka þátt í því sem þau kalla samfélagsverkefni undir kjörorðinu: Vorið kemur.

Og hvað er það?

Sr. Hjalti Jón Sverrisson, prestur í Laugarnesinu, er til svara: „Nú á að virkja hina listrænu hlið sóknarbarnanna,“ segir hann, „og hvetja börnin í hverfinu ásamt þeirra fólki til að þramma út í vorið og hafa augun opin.“

Hann segir fyrsta verkefnið vera vorið sjálft, smella einni mynd af því – þemað er vor. Svo kemur annað þema, páskarnir, þar sem hvatt er til að teikna eða lita með þá hátíð í huga.

Blessað vorið! „Við biðjum fólk um að senda okkur myndirnar í tölvupósti og ætlunin er að deila þeim út á heimasíðu Laugarneskirkju og Facebókar-síðu kirkjunnar,“ segir sr. Hjalti Jón og er fullur bjartsýni um að nú steðji Laugnesingar út í vorið – sem kemur – ef það er bara ekki nú þegar farið að gægjast á sálargluggann. Krókusarnir eru með fyrstu sendiboðum vorsins og þeir eru farnir að gá til veðurs í görðum Laugnesinga sem og annarra. Fögnum þeim!

Þá má geta þess að verkefninu Samfélag og þakklæti er að ljúka í Laugarnessöfnuði. Það fólst í því að fólk sem tengdist Laugarneskirkju með einum eða öðrum hætti á einhverju árabili í lífi sínu skrifaði pistla inn á heimasíðu kirkjunnar. Þetta er fólk sem hefur til dæmis verið í kirkjustarfi eins og prestar, messuþjónar, kórfélagar, umsjónarfólk æskulýðsfélagsins, sóknarnefndarfólk og sunnudagaskólakennarar ... og margir, margir fleiri. Þverskurður af þeim sem hafa látið kirkjustarfið til sín taka með ýmsum hætti á umliðnum árum. Sjötíu ára afmæli kirkjunnar var kveikjan að þessum þakklætisskrifum - kirkjan var vígð í 18. desember 1949. Pistlana má sjá á heimasíðu kirkjunnar hér. Og Facebókar-síða Laugarneskirkju er hér.

Kirkjan.is hvetur aðra söfnuði sem lúra á skemmtilegum tiltækjum að senda línu um það á kirkjan@kirkjan.is

Saman göngum við út í vorið!

hsh


Laugarneskirkja - Guðjón Samúelsson teiknaði - vígð 1949


  • Frétt

  • List og kirkja

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Trúin

  • Menning

  • Samfélag

Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta