Samið við organista

3. júlí 2020

Samið við organista

Orgel Laugarneskirkju - íslensk smíð Björgvins Tómassonar - 28 radda orgel, vígt 2002. Hljóðfærið er listasmíð eins og kirkjan sjálf

„Þjóðkirkjan er syngjandi kirkja... Hið hefðbundna hljóðfæri kirkjunnar er orgelið...“ svo segir í tónlistarstefnu þjóðkirkjunnar sem endurnýjuð var í fyrra.

Organistar gegna þar lykilhlutverki og kirkjan rekur meðal annars Tónskóla sem sér um menntun organista.

Verður er verkamaðurinn launa sinna – og verður er organistinn fyrir hverja nótu sem hann slær og meira til!

Nýbúið er að undirrita kjarasamning milli Launanefndar þjóðkirkjunnar og Félags íslenskra hljómlistarmanna (FÍO/organistadeildar FÍH). Hann gildir frá 1. apríl 2019 og til 31. desember 2022. Samningurinn var undirritaður 22. júní. 

Í mörg horn að líta Þegar kjarasamningar eru gerðir þá kemur margt til athugunar sem fólk leiðir sjaldan hugann að. Það þarf að meta starfið, vinnutíma, athuga hvernig ráða skal og lýsa starfi. Semja um orlof, hafa eitthvað um ferðir og gistingu. Þá eru það laun í veikinda- og slysaforföllum. Og slysatryggingar? Spyr þá einhver hvort hættulegt sé að leika á orgel? Því er til að svara að slys gera ekki boð á undan sér í starfi organista eins og annarra og slysatrygging þeirra nær eins og hjá mörgum til slyss við vinnu eða á „eðlilegri leið frá vinnu til vinnustaðar og frá vinnustað til heimilis.“ Einnig kemur til starfsþjálfunar og organisti sem sækir námskeið henni tengdri og með leyfi sóknarnefndar skal halda reglubundnum launum á meðan. Þá eru það tjónabætur, fæðingarorlof þarf að ræða, svo eru það sjúkra-, trygginga-, orlofs- og lífeyrissjóður. Nú þá ákvæði um uppsagnir úr starfi og margt fleira.


Kirkjan.is hafði samband við formann Félags íslenska organista, Helgu Þórdísi Guðmundsdóttur.

„Samningar voru búnir að vera lausir í um átján mánuði, eða frá 1. janúar 2019,“ segir Helga Þórdís. Hún segir að samningaviðræður hafi staðið yfir í um eitt ár og tafist vegna þess að það tók langan tíma að skipa samninganefnd þjóðkirkjunnar. „Þrátt fyrir að svo langan tíma hafi tekið að semja var ávallt gott andrúmsloft, gagnkvæmur skilningur og virðing milli aðila,“ bætir Helga Þórdís við.

Hún segir samninginn fela í sér almennar launahækkanir til samræmis við það sem er að gerast á almennum vinnumarkaði um þessar mundir. 

„Mikilvæg atriði kom nú loksins til framkvæmda,“ segir Helga Þórdís, „en það var að koma okkur sem erum stétt innan BHM inn í kjaraumhverfi BHM og svokallaða BHM launatöflu til samræmis við þá aðila sem vinna okkur við hlið í kirkjunni og hafa svipaða menntun.“ Hún segir að organistar hafi verið í öðru kerfi lengi vel sem segja má að hafi rýrt bæði kjarabætur þeirra og menntunarmat.

„Í síðustu samningum okkar sem giltu frá árinu 2016 var sérstök bókun gerð um það að vinna skyldi að því að meta menntun organista til launa,“ segir Helga Þórdís „og þessi nýi samningur endurspeglar vinnu í þá átt og er það ánægjuefni.“ 

Organistar hafa samþykkt samninginn.

hsh



Við samningaborðið. Frá vinstri: Launanefnd þjóðkirkjunnar:
Guðmundur Einarsson, sóknarnefndarformaður Seltjarnarneskirkju
Egill Heiðar Gíslason, í sóknarnefnd Laugarnessóknar
Ragnhildur Benediktsdóttir, formaður Launanefndar þjóðkirkjunnar
Gunnar Þór Ásgeirsson í sóknarnefnd Dómkirkjusóknar
Frá hægri er samninganefnd Félags íslenskra organista:
Þorvaldur Örn Davíðsson, organisti í Langholtskirkju
Helga Þórdís Guðmundsdóttir, organisti í Víðistaðakirkju
Jóhann Baldursson, organisti í Vídalínskirkju 
Gunnar Hrafnsson, formaður F.Í.H., fulltrúi stéttarfélags organista

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Tónlist

  • Trúin

  • Frétt

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta