Þrjár sóttu um Húsavík

7. júlí 2020

Þrjár sóttu um Húsavík

Húsavíkurkirkja - mynd: Sigurður Herlufsen

Biskup Íslands auglýsti fyrir nokkru eftir sóknarpresti til þjónustu í Húsavíkurprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi.

Umsóknarfrestur rann út á miðnætti 6. júlí.

Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. september, eða í síðasta lagi þremur mánuðum eftir að niðurstaða um ráðningu liggur fyrir.

Þær sóttu um starfið:

Sr. Erla Björk Jónsdóttir
Guðrún Eggertsdóttir mag. theol.
Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir

Allar gildar umsóknir fara til þriggja manna matsnefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 5. og 6. gr. „Starfsreglna um val og veitingu prestsembætta...“ Matsnefnd velur að jafnaði fjóra hæfustu umsækjendurna en þó aldrei fleiri en fimm og skilar skýrslu þar að lútandi til biskups.

Kjörnefnd Húsavíkurprestakalls kýs sóknarprest úr hópi umsækjenda, að loknu valferli kjörnefndar, sbr. „Starfsreglur um val og veitingu prestsembætta...“ og biskup ræður svo í starfið.

Prestakallið – og fyrirvari Prestakallið er ein sókn, Húsavíkursókn, sem nær yfir Húsavík, ásamt Tjörnesi og hluta af Reykjahverfi. Í prestakallinu er ein kirkja, Húsavíkurkirkja. Sóknarprestur hefur skrifstofuaðstöðu í Bjarnahúsi, safnaðarheimili kirkjunnar. Prestsetur fylgir ekki prestakallinu. Sóknarprestur annast helgistundir og messur á dvalarheimilinu Hvammi.

Húsavíkurprestakall var auglýst með fyrirvara um að áskilinn væri réttur til að skilgreina viðbótarskyldur við prófastsdæmið og önnur prestaköll innan þess, sem og við Þjóðkirkjuna – Biskupsstofu og aðra kirkjulega aðila. Biskupafundur hefur unnið að breytingum á skipan prestakalla um allt land með sameiningum tveggja eða fleiri í eitt stærra prestakall án fækkunar presta. Ofangreind þjónusta er auglýst laus til umsóknar með þeim fyrirvara að vera má að biskupafundur leggi tillögur fyrir kirkjuþing er varða m.a. Húsavíkurprestakall og sem kunna að leiða til breytinga á skipan prestakalla í prófastsdæminu, hljóti þær samþykki kirkjuþings.


hsh

 


  • Frétt

  • Kosningar

  • Leikmenn

  • Menning

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Sóknarnefndir

  • Starf

  • Starfsumsókn

  • Biskup

Sr. Stefán Már.jpg - mynd

Ályktun Presta- og djáknastefnu 2024

18. apr. 2024
...um mikilvægi barna- og unglingastarfs
Úlfastundir 5.jpg - mynd

Úlfastundir í Lágafellssókn

18. apr. 2024
...boðið upp á slátur og graut