Útimessa fyrir austan

11. júlí 2020

Útimessa fyrir austan

Geirsstaðakirkja í landi Litla-Bakka í Hróarstungu

Geirsstaðakirkja er í landi Litla-Bakka við Hróarstungu. Þangað hafa kannski ekki margir komið. Þau sem ekki hafa komið þangað en eru á ferð um Tunguveg nr. 925 eða annars staðar nærstödd um þessar mundir ættu að líta þar við á morgun kl. 16.00.

Hvers vegna?

Jú, þar verður útimessa á flötinni við kirkjuna. Sr. Þorgeir Arason, sóknarprestur í Egilsstaðaprestakalli, heldur utan um helgihaldið. Torvald Gjerde leikur á harmoniku undir sálmasöng. Síðan segir Skúli Björn Gunnarsson frá kirkjunni og tilgátunum að baki byggingunni. Skúli Björn er forstöðumaður Skriðuklausturs (áður Stofnun Gunnars Gunnarssonar að Skriðuklaustri).

Fólk er hvatt til að taka með sér púða eða teppi til að sitja á. Þá er minnt á að ekki spilli að taka með sér nestisbox og kaffikönnu til að leggja í messukaffipúkk.

Skemmtileg hefð „Útimessa á fallegum stað í dreifbýli Fljótsdalshéraðs er árviss viðburður hjá okkur í Egilsstaðaprestakalli,“ segir sr. Þorgeir þegar kirkjan.is spyr hann um útihelgihaldið, „en það var sr. Lára G. Oddsdóttir, fyrrum sóknarprestur í gamla Valþjófsstaðarprestakalli, sem kom á þessum sið á sínum tíma.“

Sr. Þorgeir segir að messað hafi verið upp til fjalla og inn til dala, við fossa og flatir.

„Það hefur verið messað einu sinni áður við Geirsstaðakirkju,“ segir sr. Þorgeir og bætir því við að Geirsstaðakirkja hafi ekki stöðu sem venjuleg kirkja. Hún er ekki sóknarkirkja – hún er blessuð en ekki vígð – og ekkert reglulegt helgihald fer þar fram. „Í raun og veru er Geirsstaðkirkja tilgátuhús en þó hafa farið þar fram fáeinar athafnir eins og hjónavígslur og skírn.“

„Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður Gunnarsstofnunar, er margfróður um söguna og er sonur landeigenda og þekkir mjög vel til,“ segir sr. Þorgeir og bætir við gaman sé að hlýða á hann.

Geirsstaðakirkja var áður í umsjá Minjasafns Austurlands en nú eru það landeigendur á Litla-Bakka, þau Svandís Skúladóttir og Gunnar Guttormsson, sem sjá um hana.

„Messan var undirbúin í samráði við þau Svandísi og Gunnar,“ segir sr. Þorgeir, „við vonum að hún verði vel sótt en um mætingu er ævinlega rennt blint í sjóinn.“

Veðurspáin er góð að sögn sr. Þorgeirs og er hann vongóður um að margir hafi áhuga á að sameina útivist, helgihald og sögulega fræðslu með þessu móti.

Geirsstaðakirkja Kirkjurúst kom í ljós þegar fornleifauppgröftur stóð yfir á fornu bæjarstæði í landi Litla-Bakka í Hróarstungu sumarið 1997. Bærinn sem þar stóð er líklegast Geirsstaðir og hann var talinn vera frá þjóðveldisöld (930-1262). Þar var stórbýli á landnáms- og söguöld. Kirkjan var að öllum líkindum reist úr torfi og timbri um árið 1000. Síðan spratt sú hugmynd upp að endurgera kirkuna og var ráðist í verkið og því lokið sumarið 2001. Kirkjan var endurgerð út frá niðurstöðum fornleifarannsókna á kirkjurústinni. Þessum rannsóknum stýrði Steinunn Kristjánsdóttir, fornleifarfræðingur. Hafist var handa um byggingu torfkirkjunnar á árunum 1999-2001. Þar komu við sögu meðal annarra þeir Gunnar Bjarnason, húsasmíðameistari, og Guðjón Kristinsson, torfhleðslumeistari. Minjasafn Austurlands átti líka hlut að máli og þá fékkst styrkur til verksins frá Rafaël- og Cultura 2000-sjóðum Evrópusambandsins, Vísindasjóði Rannsóknarráðs Íslands o.fl. aðilum.

Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir blessaði kirkjuna sumarið 2001.

Egilsstaðaprestakall

Minjasafn Austurlands rekur öflugan upplýsingavef sem sjá má hér.

Skriðuklaustur

hsh


Þessi leiðsögn getur komið að notum
 


  • Menning

  • Messa

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Trúin

  • Viðburður

  • Frétt

Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
Bænagangan 3.jpg - mynd

Bænagangan 2024

23. apr. 2024
...á sumardaginn fyrsta