Trú og umhverfismál í Skálholti

6. ágúst 2020

Trú og umhverfismál í Skálholti

Skálholtsdómkirkja

Í hátíðarræðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á Skálholtshátið um miðjan júlí sagði hún að framundan væri:

„spennandi verkefni sem snýst um alþjóðlegt samstarf kirkjudeilda gegn loftslagsvánni – samstarf sem byggist á virðingu fyrir sköpunarverkinu sem við sjáum að hefur látið á sjá vegna taumlausrar nýtingar á náttúrunni sem mun hafa hrikalegar afleiðingar fyrir vistkerfi jarðar og mannkynið ef ekki verður tekið í tauma og nýjar brautir fetaðar, brautir þar sem við hugum að jafnvægi umhverfis, samfélags og efnahags og byggjum sjálfbært samfélag.“

Við sama tilefni tók sr. Kristján Björnsson, víglsubiskup í Skálholti, fram að að haldin yrði í byrjun október nk. Ráðstefna Skálholt 2 þar sem umhverfismál og loftslagsmál yrðu í brennidepli. Ráðstefnan ber heitið: Trú og aðgerðir fyrir náttúruna  (e. Faith Action for Nature).

Land, jörð og trú

Frá því á Skálholtsráðstefnunni Trú í þágu jarðar - frumkvæðið (Faith and Community Engagement for the SDGs) í fyrra hafa fulltrúar frá Þjóðkirkjunni, Félagi Sameinuðu þjóðanna, Landgræðslunni, Skógræktinni ásamt einstaklingum úr vísinda- og háskólasamfélagi og ýmsum trúfélögum unnið með fulltrúa Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) að því að ná fram samfylgd allra trúarhreyfinga í baráttu fyrir Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. UNEP hefur unnið markvisst að þessu verkefni frá því 2017. Verkefnisstjóri íslenska teymisins í undirbúningnum er Páll Á. Davíðsson, varaformaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Bandalag trúfélaga um heimsmarkmið Ákveðið hefur verið að halda í Skálholti í byrjun október ráðstefnu um stofnun Trú í þágu jarðar-bandalags (Faith for Earth Coalition) innan vébanda Umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Um er að ræða einstakt framtak sem mun sameina helstu trúfélög um Heimsmarkmiðin og umhverfisvernd almennt. Ennfremur verða gerð drög að ályktun fyrir næsta Umhverfisþing Sameinuðu þjóðanna um hlutverk trúarinnar og gilda í baráttunni fyrir Heimsmarkmiðin.

Ráðstefnunni verður fylgt eftir með sérstökum ályktunarfundi í Reykjavík. Vonast er eftir heimsóknum og þátttöku fulltrúa ólíkra trúarbragða hingað til lands en einnig skipuleggja alþjóðlegu samtökin Trúarbrögð í þágu friðar (Religions for Peace) vinnustofur í öllum heimshlutum sem tengjast munu ráðstefnunni í Skálholti á skjáfundum.

Mikilvægir stuðningsaðilar

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að Ísland verði vettvangur ráðstefnunnar. Ríkisstjórnin, Þjóðkirkjan og Landgræðslan hafa styrkt verkefnið fjárhagslega. Umhverfisráðuneytið hefur fylgst vel með öllum undirbúningi og hefur Inger Andersen, framkvæmdastjóri UNEP, þekkst boð Guðmundar Inga Guðbrandssonar, umhverfisráðherra, um að taka virkan þátt í ráðstefnunni á Íslandi.

Drifkraftur 80% jarðarbúa

Eins og fram hefur komið á vegum UNEP væri mikill akkur að því ef öll helstu samtök með trúarlegan bakgrunn sameinuðust í því verkefni að vinna Heimsmarkmiðunum brautargengi. Andleg gildi eru drifkraftur 80% heimsbúa, og þess vegna hafa leiðtogar trúarhópa einstaka möguleika til þess að hafa áhrif á hegðun einstaklinga gagnvart umhverfi sínu. Félagasamtök með trúarlegan bakgrunn eru áhrifamikil í nærsamfélögum eins og þeir sem vinna að náttúruverndar- og landgræðslumálum á alþjóðavísu gera sér vel grein fyrir. Á heimsvísu stjórna samtök með trúarlegan bakgrunn 50% af öllum skólum, reka fleiri fjölmiðla en öll lönd Evrópusambandsins og eru m.a. talin fjórði stærsti hópur fjárfesta í heiminum.

Inger Andersen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar SÞ, tekur virkan þátt
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra og ríkisstjórnin veita stuðning
Þjóðkirkjan og Landgræðslan eru meðal virkra stuðningsaðila og þátttakenda

/hsh



  • Frétt

  • Guðfræði

  • Menning

  • Ráðstefna

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Skipulag

  • Viðburður

  • Alþjóðastarf

logo.png - mynd

Síðari umferð kosningar biskups Íslands

25. apr. 2024
...hefst 2. maí næstkomandi.
Ólafur Egilsson

Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

24. apr. 2024
...stilla saman strengi
Söngvahátíð 7.jpg - mynd

Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

23. apr. 2024
...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta