Ein saga – eitt skref

7. ágúst 2020

Ein saga – eitt skref

Þjóðkirkjan í samstarfi við Samtökin ´78 boðar til kynningarfundar á morgun á verkefninu Ein saga – eitt skref.

Þorbjörg Þorvaldssdóttir formaður Samtakanna 78 mun segja nokkur orð í upphafi og síðan mun biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, taka til máls.

Tilgangur verkefnisins er að gera upp og læra af sögu misréttis gagnvart hinsegin fólki innan kirkjunnar. Fyrsta skrefið verður að safna persónulegum reynslusögum af fordómum og andstöðu Þjóðkirkjunnar við réttindi hinsegin fólks í gegnum árin.

Sett hefur verið upp sögusíða þar sem hver og einn, sem geymir sögu sem hann/hún/hán vill deila, getur fyllt út form og skilað inn. Sögunum verður safnað saman af Samtökunum ´78.

Slóð sögusíðunnar er: https://einsaga.samtokin78.is

Næsta vor verða síðan sögurnar gerðar opinberar. Sögurnar verða hengdar upp í kirkjum landsins, til vitnisburðar og lærdóms.

Til vitnis um erfiða sögu sem mikilvægt er að endurtaki sig ekki, en einnig um þjáningu, baráttu og vilja hinsegin fólks til að öðlast viðurkenningu, frelsi og mannréttindi.

Með auðmýkt gagnvart sögunni og vilja til að vera framvörður kærleika, mannréttinda og fjölbreytileika í komandi framtíð.

Upphaflega var viðburðirnn opinn öllum. En í ljósi stöðunnar sem uppi er í samfélaginu, þeirrar baráttu sem við öll heyjum við útbreiðslu COVID og þess almannahlutverks sem við gegnum öll, verður viðburðinum streymt á netinu.

Viðburðurinn verður á morgun, laugardaginn 8. ágúst, í streymi aðgengilegur á www.kirkjan.is og www.samtokin78.is og hefst kl. 13.00.

Streymið má sjá hér.

Klukkan 14.00 verður regnbogafáninn dreginn að húni við kirkjur víðs vegar um landið.


    Ólafur Egilsson

    Vinir Hjálparstarfsins fræðast um starfið

    24. apr. 2024
    ...stilla saman strengi
    Söngvahátíð 7.jpg - mynd

    Söngvahátíð barnanna á Akureyri og í Reykjavík

    23. apr. 2024
    ...börnin syngja í útvarpsmessu á sumardaginn fyrsta
    Bænagangan 3.jpg - mynd

    Bænagangan 2024

    23. apr. 2024
    ...á sumardaginn fyrsta