Einlæg glíma við mannlega tilveru

5. desember 2024

Einlæg glíma við mannlega tilveru

Skálholtsútgáfan – útgáfufélag þjóðkirkjunnar hefur gefið út bókina Hver vegur að heiman er vegur heim eftir Vigfús Bjarna Albertsson fyrrum sjúkrahússprest og núverandi forstöðumann Sálgæslu og fjölskylduþjónustu kirkjunnar.

Höfundurinn, Vigfús Bjarni deilir í þessari bók bæði þekkingu og reynslu af glímu fólks við þjáninguna, sorgir og tilgang lífsins.

Hann býður lesandanum með sér í ferðalag þar sem hann kynnir af einlægni eigin áskoranir og sjálfsskoðun í öldugangi lífsins.

Höfundur segir af nærgætni sögur af aðstæðum fólks og atburðum sem mörgum virðast kunnuglegar.

Frásagnirnar byggjast bæði á fræðilegri menntun höfundar og tuttugu ára reynslu af sálgæslu, en hann hefur þjónað sem sjúkrahúsprestur, forstöðumaður við Sálgæslu- og fjölskylduþjónustu kirkjunnar, unnið í mannauðsmálum kirkjunnar og sem kennari í sálgæslufræðum.

Í bókinni fylgjast lesandinn og höfundur að og staldra reglulega við.

Hugleiddar eru spurningar eins og hver er ég, hver ert þú og hver er Guð, æðri máttur.

Í frásögnum er vitnað til sálgæslufræða og sagt frá reynslu.

Bókin getur því höfðað til allra sem hafa áhuga á mannlegri tilveru, hvort sem um er að ræða fagfólk eða manneskjur sem gleðjast og þjást.

Lífið er ferðalag fólks sem felur í sér áþekka reynslu, sama hvaða lífsskoðun fólk aðhyllist.


slg


  • Prestar og djáknar

  • Trúin

  • Útgáfa

  • Fræðsla

Addis9.jpg - mynd

Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

23. jún. 2025
Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins fór fram dagana 12.–16. júní í höfuðborg Eþíópíu.
Sr. Pétur Ragnhildarson

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. jún. 2025
...í Breiðholtsprestakalli
Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní