Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. júní 2025

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

Sr. Pétur Ragnhildarson

Í gær sagði kirkjan.is frá því að Bjarki Geirdal Guðfinnsson hefði verið ráðinn prestur í Breiðholtsprestakalli.

Í Breiðholtsprestakalli eru tvær kirkjur, Breiðholtskirkja og Fella og Hólakirkja.

Sr. Jón Ómar Gunnarsson sem var sóknarprestur í Breiðholtsprestakalli var fyrir skömmu ráðinn prestur í Nesprestakalli.

Þá var sr. Pétur Ragnhildarson, sem var í stöðu prests við söfnuðinn ráðinn sóknarprestur.

Pétur Ragnhildarson er fæddur árið 1993.

Hann varð stúdent frá náttúrufræðibraut Menntaskólans á Akureyri, lauk BA-prófi í guðfræði árið 2017 og embættisprófi, mag.theol. árið 2019.

Sumarið 2021 lauk hann MA-prófi í guðfræði meðfram starfi.

Að auki hefur Pétur lokið diplómanámi í sálgæslu frá Endurmenntun Háskóla Íslands og námskeiði í sáttamiðlun við Háskólann í Reykjavík.

Pétur hefur áralanga reynslu af barna og unglingastarfi.

Hann hefur starfað sem æskulýðsfulltrúi í kirkjum, yfirmaður í frístundastarfi í grunnskóla og forstöðumaður í sumarbúðum.

Hann hefur einnig haft umsjón með fermingarnámskeiðum í Skálholti.

Þann 1. mars árið 2020 var Pétur vígður til prestsþjónustu í Fella og Hólakirkju í Breiðholtsprestakalli og Guðríðarkirkju í Grafarholti, þar sem hann starfaði sem prestur og æskulýðsfulltrúi.

Sumarið 2022 var hann skipaður prestur í Breiðholtsprestakalli.

Pétur hefur mikil tengsl við Fella og Hólakirkju, en áður en hann vígðist þangað sem prestur hafði hann verið æskulýðsfulltrúi í kirkjunni í áratug.

Hann hefur einnig gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir kirkjuna og setið í stjórnum félagasamtaka.

Hann er nú aðalmaður í héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis eystra.

Unnusta hans er Alexandra Ýr Auðunsdóttir og eiga þau einn son.

 

slg


  • Prestar og djáknar

  • Samstarf

  • Starf

  • Þjóðkirkjan

  • Kirkjustaðir

Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní
Bjarki Geirdal Guðfinnsson

Bjarki Geirdal Guðfinnsson ráðinn

12. jún. 2025
…til Breiðholtssprestakalls
maría.jpg - mynd

Sr. María Guðrún ráðin

28. maí 2025
...sóknarprestur í Hofsprestakalli