Það sem er mikilvægt fyrir mig og kannski líka fyrir þig

Það sem er mikilvægt fyrir mig og kannski líka fyrir þig

Ég er kristinn maður og ég trúi því að satt „sjálf“ frelsi mann og geri mann hamingjusamann. Það er Guði þóknanleg að vera maður sjálfur.
fullname - andlitsmynd Toshiki Toma
24. maí 2013

Í huga mínum er það hátt í forgangsatriði að maður sé ,,sjálfum sér trúr". Í prédikunum mínum er þetta atriði endurtekið aftur og aftur. Það er miðlægt í hugmyndum mínum og ég hugsa ýmislegt eða þróa í kringum þessa miðju. Maður á að vera trúr ,,sér sjálfum".

En að sjálfsögðu er ,,hinn sanni maður" ekki endilega sá sami og maður er núna í dag. Ef einhver sem notar ofbeldi á heimili sínu gagnvart konu sinni eða barni fullyrðir að það sé hann að vera ,,sá sem hann er", ætla ég aldrei að taka slíku bulli á jákvæðan hátt.

Það er alls ekki auðvelt að finna línu sem aðgreinir hluti sem tilheyra ,,hinu sanni sjálfi" frá veikleika manns eða synd. T.d. tel ég að alkóhólismi geti ekki verið hluti af ,,manni sjálfum" en maður sem glímir við alkóhólisma sé á leiðinni til hins sanna sjálfs.

Ástæða þess að ég hugsa á þann hátt er á nokkurn hátt trúarlegt. Ég er kristinn maður og ég trúi því að satt ,,sjálf" frelsi mann og geri mann hamingjusamann. Það er Guði þóknanleg að vera maður sjálfur. Ég styð réttindabaráttu samkynhneigðs fólks, meðal annars úti af þessu sjónarhorni. Samkynhneigð getur verið hluti af sönnu sjálfi fólks og því ekkert á móti Guði samkvæmt skilningi mínum.

Í starfi mínu sem prestur er það því mikilvægt að ég veiti fólki þjónustu og stuðning, svo að það geti verið sjálfur sér trútt. Þess vegna ýti ég ekki öllum sem ég hitti sjálfkrafa til kristinnar trúar. Það er fólk sem er búið að móta sjálft sig ágætlega með annarri trú en kristni eða án trúar. Þetta er jú atriði sem er ,,challenging" fyrir mig sem prest, en ég ætla ekki að hrapa að neinum ályktunum um gildi kristinnar trúar í heiminum.

Annars hef ég tækifæri reglulega til að hitta og tala við hælisleitendur. Flestir þeirra eru ekki í vinnu og eyða dögum sínum án þess að hafa sérstök verkefni. ,,Mér finnst mjög erfitt að ég hafi ekkert að gera" ,,Mér liður ílla af því að ég tilheyri ekki samfélagi" ,,Mér líður eins og ég sé tilgangslaus vera". Margir segja það. Eflaust eru þeir ekki ,, sjálfum sér trúir" á þeirri stund.

Hvenær geta þeir náð eigin sjálfsmynd til baka og orðið að manneskjum sem eru ,,sannar sjálfum sér" aftur?