Jesús sendur heim?

Jesús sendur heim?

Miðað við núverandi ástand myndum VIÐ greinilega ekki taka á móti Maríu, Jósef og Jesú, VIÐ myndum senda þau aftur til þess lands sem þau komu frá. VIÐ myndum ekki hlusta á sögu þeirra eða taka mál þeirra til efnislegrar meðferðrar því VIÐ höfum Dyflinnar-saminginn.
fullname - andlitsmynd Ármann Hákon Gunnarsson
07. júlí 2008

Það er sennilega nærri lagi að áætla að Jesús frá Nasaret sé frægasti flóttamaður allra tíma. Hann var í raun flóttamaður allt sitt líf hér á jörðu. Þegar hann var að fæðast var hvergi pláss fyrir hann nema í gripahúsi og strax eftir fæðingu var líf hans í hættu. Hann varð að pólitískum flóttamanni og foreldrar hans flúðu með hann frá Palestínu til Egyptalands. Um 30 árum síðar lét hann lífið á krossi vegna pólitískra ofsókna.

Flóttamenn á Indlandi

Núna er það önnur þriggja manna fjölskylda sem er í fréttum hér á landi og öll eru þau flóttamenn. Hér virðist hvorki vera pláss fyrir þau né pólitískur vilji til að leyfa þeim að búa á okkar fagra Íslandi sem byggir þó hefðir sínar á kristnum gildum. Það er búið að senda pabbann til Ítalíu og þaðan verður hann jafnvel sendur aftur til síns heimalands þar sem hann á það á hættu að verða fangelsaður eða myrtur vegna pólitískra skoðanna sinna.

Hér á Íslandi bíða svo nýfæddur drengur hans og barnsmóðir eftir því að verða send til Svíþjóðar. Þessari fjölskyldu hefur verið sundrað án þess að VIÐ (íslenska ríkið/þjóðin) tökum mál þeirra til efnislegrar skoðunnar. VIÐ erum í rétti og útaf því að VIÐ förum að lögum sem byggja á svokölluðum Dyflinnar-samningi. Ekki veit ég hvort þessi samningur sé góður eða vondur né hvort hann byggir á kristilegum mannúðar gildum. En ég viðurkenni að ég sár yfir því hvaða stefnu VIÐ höfum þegar kemur að málefnum flóttamanna. Af hverju eru flóttamenn ekki velkomnir á Íslandi.

Undanfarið hefur verið mikil umræða á Íslandi um hvort skólastarf megi byggja á kristilegum grunni eða arfleifð. Margir hafa tekið þátt í umræðunni og bent á og barist fyrir því að hin kristulegu gildi fái að vera hluti af menningu skólanna. Sem betur fer erum við mörg sem finnst það jákvætt að hið opinbera svið byggi á kristnum gildum en það er ekki nóg að slíkt eigi bara að vera á prenti í grunnskólalögum. Þessi gildi þurfa að sjást víðar í raunveruleikanum. Til dæmis þarf að endurskoða hvernig lögjöf okkar og hefðir eru þegar kemur að málefnum flóttamanna. Það hlýtur að vera krafa okkar sem tökum mark á siðaboðskap Jesú frá Nasaret að hér á landi verði mörkuð ný stefna og við búum til nýja hefð og hér eftir verði tekið á málefnum flóttamanna af virðingu og kærleika.

Miðað við núverandi ástand myndum VIÐ greinilega ekki taka á móti Maríu, Jósef og Jesú, VIÐ myndum senda þau aftur til þess lands sem þau komu frá. VIÐ myndum ekki hlusta á sögu þeirra eða taka mál þeirra til efnislegrar meðferðrar því VIÐ höfum Dyflinnar-saminginn. Það er eins gott að Egyptar voru ekki með þennan samning fyrir 2000 árum þá hefðu þau bara verið send strax aftur til Palestínu og Jesús hefði verið drepinn sem ungabarn og heimurinn þá aldrei heyrt sögu hans eða boðskap. ,,Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra og systra, það hafið þér gert mér” Matt 25.40