Svanirnir koma í dag

Svanirnir koma í dag

Hin sanna þjónusta við lífið felst í því að við tökum hvert annað að okkur í kærleikanum og spörum ekkert til.
fullname - andlitsmynd Anna Eiríksdóttir
06. maí 2020

Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. (Jóh. 13.34)

Mér er í fersku minni þegar tvær litlar stúlkur komu hlaupandi á móti mér á sólríkum og fallegum degi í Búðardal stuttu fyrir páska. Langar leiðir mátti sjá gleði og eftirvæntingu skína úr andlitum þeirra, og þegar þær nálguðust mig heyrði ég þær hrópa: Veistu að svanirnir koma í dag! Þrátt fyrir að þessar upplýsingar væru mér algjörlega ókunnar, var ómögulegt annað en að hrífast með, því skilaboðin voru skýr; það voru tímamót í vændum og þeim fylgdi ferskur andblær vonar og gleði.

Það er ekki ofsögum sagt að veturinn hafi verið okkur landsmönnum harður. Hver lægðin af annarri gengið yfir landið með óveðri, ofsaveðri og ófærð, stundum í öllum landshlutum, dag eftir dag. Við sem erum búsett í Dölum fáum ekki síst að finna fyrir því þegar Brekkan lokast. Það er okkar farartálmi á veturna. Margir voru að vonum orðnir langþreyttir eftir tveggja mánaða veðurofsa og fannst löngu tímabært að þessu færi nú að linna. En þá gerðist hið óvænta og annars konar, óþekkt óveðursský hrönnuðust upp. Á örfáum dögum blasti við ný og óþekkt heimsmynd sem setti allt daglegt líf manna á annan endann, sem og óttinn og óvissan yfir því hvað tæki við. Það er auðvelt að finna til vanmáttar í slíkum aðstæðum og við upplifum smæð okkar þegar við áttum okkur á því að við fáum ekki við allt ráðið. Þá er okkur mikilvægt að eiga með okkur þá trú að yfir okkur sé vakað og von um að það birti til um síðir.

Einn daginn bárust svo þau gleðitíðindi að vorið væri handan við hornið. Það var því sannkallaður tímamótadagur, dagurinn þegar ofsalognið mætti í Dalina með sól og heiðríkju og ég trítlaði niður á bryggjusporðinn til þess að líta yfir fegurð Hvammsfjarðar. Nú var hann baðaður geislum sólar og iðaði af fuglalífi og viti menn, svanirnir voru mættir. Svanurinn er sennilega með tígulegri fuglum í íslenskri fuglaflóru. Hann minnir mig á ævintýrið um hana Dimmalimm, söguna af svaninum sem felldi haminn þegar prinsessan góða, hún Dimmalimm, leysti hann undan álögum sínum með umhyggju og takmarkalausri ást. Þetta er í raun falleg ástarsaga sem ber með sér sterka táknmynd um þjónustuna sem lífi okkar er ætlað að vera. Með sama hætti opinberast ástarsaga náttúrunnar okkur í gjöfulleika hennar. Gleðinni sem hún ber inn í tilveru okkar þegar lífið kviknar að nýju, við sauðburðinn hér á vorin, þegar fuglasöngurinn berst um móana og ilmur af nýslegnu grasi fyllir loftið. Þá er eins og draumar okkar og þrár fái vængi.


Það helltist yfir mig sterk upplifun vonar og gleði við að sjá eftirvæntinguna skína úr andlitum stúlknanna og mér varð hugsað til atburða páskavikunnar sem framundan var. Um vonina sem vaknað hafði hjá fólkinu sem vænti komu þess sem breytt gæti lífi manna og heims, Jesú Krists. Fæstir höfðu hins vegar séð atburðarásina fyrir og vonir og væntingar þessa sama fólks breyttust fljótlega í ótta og skelfingu við atburðina sem á eftir fylgdu. En ekki leið á löngu þar til nýr veruleiki blasti við sem veitti heiminum von að nýju. Þar hefur Jesús gripið um hjarta okkar og gefið okkur einfalda uppskrift til að fara eftir: Elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. Hin sanna þjónusta við lífið felst í því að við tökum hvert annað að okkur í kærleikanum og spörum ekkert til. Frásögnin af Maríu í Betaníu sem tók aðeins örfáum dögum fyrir páska ilmsmyrsl og smurði fætur Jesú og þerraði með hári sínu talar með sterkum hætti inn í þá mynd. Það var falleg, fábrotin og táknræn athöfn þegar konan smurði Jesú. Einhverjir hneyksluðust á gjörðum hennar en Jesús svaraði þeim og sagði: Gott verk gjörði hún mér. Konan þjónaði, gaf af sér og gerði það sem hún taldi best. Hennar verður minnst fyrir góðverk sitt um aldur og ævi. Og kærleiksverk konunnar hefur borist eins og ilmur um heim allan. Ilmur af góðvild og umhyggju. Við höfum séð táknmyndina blasa við okkur í öllu því góða fólki sem léð hefur Guði hendur sínar til þjónustu við þá sem veikst hafa af covid-19-veirunni. Okkur hafa borist fréttir af því að í þeim löndum, þar sem ástandið hefur verið hvað verst, hafi heilbrigðisstarfsfólk fórnað eigin lífi í þeirri þjónustu. Þeirra verður minnst fyrir góðverk sitt.

Eftir vetur kemur vor og þó að náttúran geti reynst okkur oft býsna hörð, þá er hún að sama skapi gjöful. Guð gleymir okkur ekki. Söngur svananna úti á firðinum minnir okkur á að fuglarnir sem forðuðu sér undan vetri mæta aftur til að gleðja okkur með söng sínum og litríkri tilveru. Við getum öll glaðst yfir þeim tímamótum.