Þegar fermingarbarnið kemur til þín!

Þegar fermingarbarnið kemur til þín!

Á hverju hausti ganga tilvonandi fermingarbörn í hús og safna fé til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Börnin ganga tvö og tvö saman og foreldrar þeirra eru jafnvel með í för þegar þau banka upp á hjá landsmönnum með söfnunarbauk í hönd.
fullname - andlitsmynd Bjarni Gíslason
04. nóvember 2014

Fermingarbarn gengur í hús

Á hverju hausti ganga tilvonandi fermingarbörn í hús og safna fé til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku. Börnin ganga tvö og tvö saman og foreldrar þeirra eru jafnvel með í för þegar þau banka upp á hjá landsmönnum með söfnunarbauk í hönd.

Áður en börnin ganga í hús fá þau fræðslu um það hvernig vatnsþró, vatnstankur eða brunnur með hreinu vatni getur gjörbreytt lífi fólks til hins betra: Heilsufar batnar; stúlkur sem áður sóttu vatn um langan veg fá tíma til að sækja skóla; með áveitu verður til meiri og betra fæða og svo koll af kolli.

Með því að taka þátt í fjáröflunarverkefninu fá börnin innsýn í líf jafnaldra sinna í starfssvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku og kynnast erfiðleikum sem þau búa við. Fermingarbörnin fá líka tækifæri til að ræða um ábyrgð okkar allra á því allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi.

Í nóvember 2013 söfnuðu fermingarbörn 8.283.633 krónum til vatnsverkefna í Eþíópíu, Malaví og Úganda. Framlag fermingarbarna og stuðningur þeirra er ómetanlegur og kann Hjálparstarfið þeim bestu þakkir fyrir!

Næstu daga ganga fermingarbörn enn í hús og safna fé til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Úganda og Eþíópíu. Með von um að þú, lesandi góður, takir vel á móti fermingarbörnunum sem banka upp á hjá þér með söfnunarbauk Hjálparstarfs kirkjunnar í hönd.

Bestu kveðjur, Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar