Festa öfgar rætur hér?

Festa öfgar rætur hér?

Í umræðum hér á landi eru öfgarnar afgreiddar sem þjóðremba og útlendingahatur. En það er barnaleg afneitun, því fleira liggur að baki.
fullname - andlitsmynd Gunnlaugur S Stefánsson
15. febrúar 2017

Öfgahreyfingar innblásnar af lýðskrumi ná eyrum fólks á Vesturlöndum. Stofnannakerfið er að glata valdinu yfir fólkinu og veit ekki sitt rjúkandi. Traustið er í uppnámi. Í umræðum hér á landi eru öfgarnar afgreiddar sem þjóðremba og útlendingahatur. En það er barnaleg afneitun, því fleira liggur að baki.

Málshefjendur öfganna tala við einstaklinginn í fjöldanum um lífskjörin og raunaðstæður. Fólki finnst það einhvers metið. Stofnannakerfið með stjórnnmálaflokkum sínum, sem komið er í órafjarlægð frá þörfum fólks og líðan, bregst við með gömlum klisjum og framleiðir fleiri skýrslur og tölur. En fólkið þráir virðingu, að tekið sé mark á því og brugðist við berskjaldaðri spillingu af festu. Öfgahreyfingarnar sýnast ljóma af hugsjón, en hefðbundnir stjórnmálaflokkar hafa breyst í bandalög frambjóðenda til að tryggja sér atvinnu á þingi og gæta þröngra sérhagsmuna. Skoskur álitsgjafi sagði um Brexit: „Ef við, sem tilheyrum elítunni, hefðum varið meiri tíma á kránum úti á landsbyggðinni á Englandi og Walse, þá hefðum við fengið að kynnast hvað meririhluti kjósenda, sem ekki tilheyrir elítunni, er að hugsa“.

Á Íslandi hefur stofnannakerfi valdsins safnast saman á höfuðborgarsvæðinu og bólgnað út. Það hefur verið inngróið lögmál um langa tíð. Hugmyndafræði kerfisins byggist á því að allan vanda skuli leysa með meiri fjármunum. Takmarkað rými er fyrir skilning og auðmýkt til að setja sig í annarra spor og enn síður að rækta samstarf til að einfalda og styrkja þjónustuna. Stofnanir einangra sig, verja sína stöðu og framleiða hvert regluverkið ofan á annað sem oft er ómögulegt að skilja. Starfsfólkið fær litlu ráðið af því að það er fjötrað í kerfisskóginum.

Tekjubilið á milli lægstu og hæstu launa breikkar óðfluga í góðærinu. Almenningur er múlbundinn af lánum á okurvöxtum og borgar stóran hluta af heimilistekjum til lánadrottna. Það er kaldhæðnislegt og fólki er misboðið, þegar spámenn á ofurlaunum vara við hækkun lægstu launa og hóta að kollvarpi stöðugleikanum. Þá svífast ósnertanlegir auðhringar einskis með taumlausri græðgi sinni og soga til sín ómældan gróða af fólki og auðlindum á vildarkjörum kerfisins. En einstaklingurinn og smærri atvinnurekstur er fjötrum bundinn af kerfinu og getur sig lítið hreyft nema spyrja leyfis og borga fyrir. Hér býr fámenn þjóð, en vel menntuð og tæknivædd, sem kæmist fyrir í hverfi í einni höfuðborg nágrannalandanna. Við höfum því einstakt tækifæri að þróa kerfin til að vera manneskjuleg og treysta lífskjör með jöfnuði sem vitna um virðingu við fólk. Landið er stórt með mögnuðum lindum auðs og fegurðar sem krefjast þess að vandað sé til nýtingar og hlúð að búsetu fólks og lífsgæðum. Í áföllum þegar allar bjargir virðast bannaðar, þá tökum við höndum saman og leyfum hjartanu að ráða för. Væri ekki ráð að virkja þennan kærleikans mátt inn í stjórnarfarið líka?

Ef stjórnmálafólk bregst ekki hraustlega við með aðgerðum munu pólitískar öfgar festa rætur í þjóðlífinu og þolinmæðin snúast í bullandi reiði. Þá duga fjármunir ekki til að skapa frið.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu 4. janúar 2017