Ástarsögur

Ástarsögur

“Meðan kirkjan stendur mun þessi byggð standa” var sagt um kirkju á Suðurlandi. “Ég elska þessa kirkju” sagði ein konan og átti bæði við húsið og erindi hennar. Góðar ástarsögur hrífa. Ástarsaga Guðs skapar líf kirkjunnar og varðar okkur öll.

“Þetta er kirkjan okkar. Kirkjan er hluti af okkur. Við viljum halda í hana og hafa hana fallega.” Ég stóð við hliðina á sóknarnefndarformanni norður í landi og ræddi við hann um stöðu kirkjunnar, um kirkjuhúsið og þróun kirkjumála. Hann færði í orð viðhorf fólks um allt land. Við eldhúsborð og í stofum hef ég heyrt svipaðar sögur fólks um kirkjuna. Þjóðkirkjan skiptir þau máli, en það er kirkjan þeirra, sóknarkirkjan og líf hennar, sem þau tala um af mestri elskusemi.

Kirkjuhús þjóna ýmsum hlutverkum. Þau eru skoðunarstaðir ferðafólks á leið um landið. Margir stoppa til að skoða kirkjur og garðana umhverfis þær vegna þess að þar eru menningarminjar. Þær tjá með ýmsum hætti stöðu og getu samfélags. Þær tjá líka sjálfsviðhorf fólks í sókninni. Fólk vill, að kirkjuhúsin séu falleg og þykir ótækt að þau grotni niður þó erfitt sé að finna fé til að kosta viðgerðir. Svo eru þessi hús umgjörð um mikilvægustu og helgustu athafnir í lífi fólks, staðir lifandi orðs og samfélags. Ytri ásýnd á því að hæfa tilefnum, umgjörð á að vera í samræmi við inntakið.

Kirkjur eru tákn um sögu viðkomandi byggðar og samhengi þeirra kynslóða, sem eiga sér sameiginlegan helgidóm, jafnvel um aldir. Kirkjur eru tákn, sem vísa til gilda og guðlegrar verndar. Hvert samfélag þarfnast dýpri skírskotunar um sið, hlutverk og tilgang. Kirkjurnar hafa ekki aðeins þjónað því hlutverki að teikna línur í landslag, vera kennileiti í sveit eða augnhvílur fólks á ferð. Kirkjuhús eru tákn um að mannfélag eigi sér dýpri rök og guðlegt samhengi, sem ekki bregst þó flest sé í heiminum hverfult. Ég hef síðustu vikur heyrt margar kirkjulegar ástarsögur. Ég er djúpt snortinn af ástartjáningum fólks gagnvart kirkjunum þeirra. Að baki játningu þeirra er heilindaafstaða, ekki aðeins til húss, heldur til menningar, sögu og trúar.

Saga Jesú Krists er ástarsaga Guðs, sem gefur líf, nærir það og leysir úr viðjum. Við mannfólkið erum aðilar og persónur þeirrar sögu. Kristnin túlkar hana með margvíslegu móti. “Meðan kirkjan stendur mun þessi byggð standa” var sagt um kirkju á Suðurlandi. “Ég elska þessa kirkju” sagði ein konan og átti bæði við húsið og erindi hennar. Góðar ástarsögur hrífa. Ástarsaga Guðs skapar líf kirkjunnar og varðar okkur öll.