Líf úr rosa

Líf úr rosa

Hvað sleit þér mest í tengslum við ástvini þína, foreldra, börn, maka, vini? Hvað hafði dýpst og sterkust áhrif á tilfinningar þínar og líðan? Hver er krísan - hver er lausnin?

Ég hef oft furðað mig á, dáðst að og glaðst yfir, þegar fólk hefur náð sér af skelfilegum áföllum, náð heilsu eftir mikil veikindi, unnið sig út úr skelfilegum áföllum og sorg eða náð landi eftir mikla hrakninga í siðferðis- eða tilfinningakreppum. Máttur lífsins kemur í ljós þegar lífið rís upp úr sora, drunga og dauða. Um það langar mig að tala í dag – því í dag er skoðunardagur fyrir sál og dagur fyrir stöðumat.

Valið mikilvæga Merking orða skiptir máli og saga orða er oft til skilningsauka. Við þekkjum orðið krísa og það er notað í flestum vestrænum málum. Það vísar til áfalla og erfiðleika. Á enskunni er það orðið crisis, á þýskunni og norðurlandamálunum Krise og á finnskunni kriisi! Ég fletti í gær orðinu upp í mörgum vestrænum málum og flest þeirra eru komin af krísunni. Orðið hefur ratað í margs konar orðasamhengi. Við tölum stundum um “krísu-stjórnun.” Og þegar allt er í volli hjá okkur erum við í krísu. Til eru peningakrísur, sálfræðilegar krísur, pólitískar krísur og heilsufarskrísur. Enginn hörgull á krísum. Enginn sleppur alveg við áföll – það vitum við öll - og sum þeirra eru raunverulegar krísur, sem kreista okkur og reyna.

Eitt mikilvægasta orðið, sem er notað í Nýja testamentinu um dóm og að dæma er einmitt orðið krisis og það er vegna hins biblíulega upphafs, sem það hefur borist um allan hinn “kristna” heim. Merking orðsins er fjölbreytileg og áhugaverð. Krisis merkir ekki aðeins að dæma, fella dóm, heldur einnig að velja á milli valkosta og að horfast í augu við þá kosti og leyfa þeim að hafa áhrif á sig og breyta lífinu. Sá sem horfist í augu við kosti lífsins, krísuna, fær þar með tækifæri til að snúa við og taka jafnvel u-beygju í lífinu! Það er að vinna með krísuna, það er að bregðast við með öflugum hætti og til góðs. Það er krísustjórnun.

Í dómssal er ekki til siðs, að dómarinn fari í eitthvert Pollyönnukast og segi við hinn dæmda: “Já, ég sé að þú hefur iðrast, hefur tekið út mikinn þroska síðan þú framdir glæp þinn. Ég sleppi þér við refsingu og gef þér tækifæri til að bæta fyrir brotin.” Dómarinn hefur ekki siðbótarhlutverki að gegna, heldur ber aðeins að dæma í ljósi þess, sem fram hefur komið og á grundvelli gildandi laga og réttar. Við ættum ekki að hugsa um Guð í réttarsamhengi. Guð er ekki ofurdómari, sem í fullkominni réttvísi sinni bíður aðgerðalaus eftir þér þar til við lok tíma og dæmir þig þá til sektar eða sýknu. Guð heldur ekki á þessum frægu vogarskálum réttarfarsins og vegur hvort þú ert nægilega góður eða góður. Réttur Guðs er annar en manna. Guð bíður ekki heldur sýnir frumkvæði, er pró-aktívur. Að vita margt um Héraðsdóm Reykjavíkur og Hæstarétt er því ekki til skilningsauka um dómsdag eða hlutverk Guðs.

Kirkjuárið og tímamót Sunnudagurinn í dag er síðasti sunnudagur kirkjuársins. Og kirkjuárið byrjar á öðrum tíma en almanaksárið. Það á sér annan hjartslátt en hinn “kronologíski” tími, sem klukkurnar mæla. Einingar og inntak þess tíma varðar ekki sekúndur eða mínútur heldur púls lífs, hvernig andi Guðs hríslast í öllu sem er, opnar möguleika þar sem allt virðist lokað og líf þar sem dauðinn ríkir.

Hallaðu þér aftur, láttu fara vel um þig og spyrðu þig: Hvað hefur reynst þér erfiðast á liðnum dögum, liðnum mánuðum, tíma sem er horfinn? Hvernig hefur þér liðið? Hvað var þér erfiðast í vinnunni? Hvað sleit þér mest í tengslunum við ástvini þína, foreldra, börn, maka, vini? Hvað hafði dýpst og sterkust áhrif á tilfinningar þínar og líðan? Hver er krísan í lífinu? Krísan í lífi þínu og hvernig bregstu við henni?

Til lífsins Síðasti sunnudagur kirkjuársins er uppgjörsdagur, eiginlega dómsdagur. Textarnir eru réttandi textar. Jesús segir í guðspjallinu, að við göngum frá dauðanum til lífsins og komum ekki til dóms. Hvað þýðir það? Skilningurinn á orðinu krísa er hjálplegur. Krísa, þ. e. dómur Guðs, er ekki aðeins það að dæma í eilífðarmálum, heldur ekki síður hvað okkur kemur best núna, aðstoða okkur til að taka okkur á, ákveða að taka sinnaskiptum og reyna að gera gott úr krísu okkar, eflast.

Við skiljum líkinguna af Guði sem dómara ekki með skikkjuklæddan hæstaréttardómara í huga, heldur skiljum við best þegar við hugsum um, að Guð hjálpi okkur til góðs í raunverulegum aðstæðum lífsins, leiðbeini okkur, styðji okkur þegar við brjótum af okkur, erum að skilja eða lendum í fjárhagsklúðri og krísu í vinnunni. Jesús talar um dóm, sem endurnýjun fólks og í tengslum við hann sjálfan.

Dómsdagur í hinu trúarlega samhengi er þegar menn viðurkenna að Jesús sé lífvaki - þegar menn taka skrefið frá dauðanum til lífsins. Dómsdagur er þá ekki aðeins eitthvað, sem varðar atburð í framtíð, heldur lífið núna, í þessum aðstæðum og á þessum degi. Dómsdagur merkir, að í tengslum við Guð verður okkar krísum snúið til góðs, ef við viljum horfast í augu við vanda okkar og að Guð kallar okkur til öflugrar krísustjórnunar í eigin lífi. Allt, sem áður þrúgaði og íþyngdi, er leitt til betri vegar. Það sem við gerðum og sáum eftir er fyrirgefið. Það, sem við botnuðum ekki í og var okkur til ills, er endurunnið til góðs. Að vera í krísu hjá Kristi er að mega fara “yfir um” - til lífsins! Við þurfum að læra að lifa í þeim anda, að framtíðin hefur brotist inn í nútíðina, á hverju augnabliki er Guð kominn. Við lifum í skurðpunkti tíma og eilífðar.

Skiladagur eilífðar En hvað þá um hinsta tíma? Gerir presturinn lítið úr honum og dómsdegi? Nei, við ættum að lifa svo að við mætum uppgjöri. Það er hin vídd þess að lifa í faðmlagi tíma og eilífðar. Öllum ber að lifa þannig á hverjum tíma, að hann eða hún geti mætt þessum „dómi“. Í postullegu trúarjátningunni játum við, að Jesús muni dæma lifendur og dauða. En hvernig það verði mega menn hafa skiptar skoðanir. Sögulegt efni litar líka hvernig við skiljum eða hvort við tökum dómsdag alvarlegan. Margir afskrifa þetta sem skemmtilegt en gamaldags rugl. Áhugamenn um tónlist þekkja dómsdagssálminn Dies Irae, dies illa... sem sr. Matthías þýddi með Dagur reiði, dagur bræði... Lýsingar dómsdags eru rosalegar og Mozart notaði dramað í hinni kunnu sálumessu sinni.

Listamenn aldanna hafa málað stórkostlegar dómsdagsmyndir, um hvernig hinir óguðlegu eru dæmdir til hryllingsvistar og hinir hólpnu leiddir inn í dýrð ljóssins. Þessum lýsingum eiga menn ekki að trúa bókstaflega. Áherslan er á ábyrgð en ekki skelfilega viðburði. Áherslan er á, að Guð er Guð - og að maðurinn hafi ráðsmennskuhlutverki að gegna og eigi að gera skil. Svo eru auðvitað allar heimsslitakvikmyndir Hollywood ein útgáfa af dómsdagsstefinu.

Þó við höfum gaman af drama, litagleði og hugarflugi kvikmynda, listaverka og tónverka megum við efast um að dómsdagur Guðs verði með því móti sem þar er lýst. Þetta eru tjáningar á ákveðnum tilfinningum, en ekki vísindalegar eða hlutlægar lýsingar á framtíðargjörningum. Textar Opinberunarbókar Jóhannesar eru eins og litríkar skyggnur, tilfinningaþrungin túlkun dómsdags og framtíðar. Við megum taka þessar tjáningar alvarlega, en ekki bókstaflega, við ættum fyrst og fremst að nema merkingu að baki táknmálinu.

Dómsdagur núna Og þá að þér. Lærðu að sjá krísurnar í lífinu sem aðstæður sem þarf að taka á og leyfa að verða til góðs. Guð sendir þér ekki áföll til að reyna þig, heldur stendur Guð með þér í krísunum og þær geta orðið til vaxtar og þroska. Þegar þú lærir, að Guðshjálpin er raunverulegur kraftur til að breyta ógn í tækifæri, krísu í vaxtarmöguleika þá verður dómsdagurinn dagur möguleika en ekki lengur dagur reiði og bræði. Dómsdagur merkir, að Guð er með þér og hjálpar þér að stíga frá dauðanum til lífsins. Dómsdagur er nú og er til góðs. Svo endar gamla árið, gamla kirkjuárið á þeim nótum, svo byrjar aðventan, tími eftirvæntingar og vona. Amen

Síðasti sunnudagur kirkjuársins 2011 B-textaröð Prédikun í Neskirkju

Lexían Maður, af konu fæddur, lifir fáa ævidaga, fulla af eirðarleysi. Hann vex eins og blóm og visnar, hverfur sem hvikull skuggi. Samt hefurðu á honum vakandi auga og kallar hann fyrir dóm þinn. Hver getur leitt hreint af óhreinu? Ekki nokkur maður. Hafi ævidagar hans verið ákvarðaðir og tala mánaða hans ákveðin af þér, hafirðu sett honum mörk sem hann kemst ekki yfir, líttu þá af honum svo að hann fái hvíld og geti glaðst yfir degi sínum eins og daglaunamaður. Jobsbók 14.1-6

Pistillinn En þetta eitt má ykkur ekki gleymast, þið elskuðu, að einn dagur er hjá Drottni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við ykkur þar eð hann vill ekki að neinn glatist heldur að allir komist til iðrunar. En dagur Drottins mun koma sem þjófur og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný, frumefnin sundurleysast í brennandi hita og jörðin og þau verk, sem á henni eru, upp brenna. Þar eð allt þetta ferst, þannig ber ykkur að lifa heilögu og guðrækilegu lífi og bíða eftir degi Guðs og flýta fyrir að hann komi. Þá munu himnarnir leysast sundur í eldi og frumefnin bráðna af brennandi hita. En eftir fyrirheiti hans væntum við nýs himins og nýrrar jarðar þar sem réttlæti býr. 2. Pétursbréfi 3.8-13

Guðspjall Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem heyrir orð mitt og trúir þeim sem sendi mig hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms heldur er hann stiginn yfir frá dauðanum til lífsins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sú stund kemur og er þegar komin að hinir dauðu munu heyra raust Guðs sonarins og þeir sem heyra munu lifa. Eins og faðirinn hefur líf í sjálfum sér þannig hefur hann og veitt syninum að hafa líf í sjálfum sér. Og hann hefur veitt honum vald til að halda dóm því að hann er Mannssonur. Jóhannes 5.24-27