KSÍ fyrirmyndar samband?

KSÍ fyrirmyndar samband?

Ég sakna þess að heyra ekki í stjórnum aðildarfélaga sambandsins sem og foreldrum barna sem stunda knattspyrnu innan sambandsins varðandi mál fjármálastjórans og afgreiðslu stjórnarinnar. Samræmist afgreiðsla málsins þeirra væntingum til stjórnar KSÍ?
fullname - andlitsmynd Þorvaldur Víðisson
17. desember 2009

Fótbolti

Um þriggja milljóna króna úttekt fjármálastjóra KSÍ af korti sambandsins á nektarstað í Zurich hefur verið til umræðu í fjölmiðlum síðustu vikur. Málið er án efa erfitt fyrir þá sem því tengjast og hefur sjálfsagt legið þungt á fjáramálastjóranum og öðrum. Þessi orð eru ekki skrifuð til að auka á þjáningarnar sem málið hefur haft í för með sér, en nokkur atriði finnst mér þó mikilvægt að velta upp í umræðunni.   Engin umfjöllun á Íslandi – fleiri sambærileg mál?   Athyglisvert er að málið fékk enga umfjöllun á Íslandi fyrr en erlendir dómstólar höfðu það til meðhöndlunar og erlendir fjölmiðlar vöktu máls á því. Spurningin vaknar hversu mörg sambærileg mál á vegum KSÍ hafa fengið meðferð þöggunar? Er mál fjármálastjórans einsdæmi? Er hugsanlegt að fjármagn KSÍ og aðildarfélaga þess sé og hafi verið notað í svipuðum tilgangi? Auk framkominnar afsökunarbeiðni stjórnar KSÍ vegna málsins hlýtur stjórnin að vilja taka af öll tvímæli um að fleiri sambærileg mál sé um að ræða.   Knattspyrnan og forvarnir   Knattspyrna var að mestu karlasport þar til fyrir nokkrum áratugum síðan. Miklar breytingar hafa orðið á iðkendahópnum síðustu áratugi og hefur þátttaka í kvennaboltanum aukist mikið. Árangur kvennalandsliðsins hefur náð hæðum sem þjóðin hefur ekki þekkt áður á þessum vettvangi og er það vel.   Knattspyrna er skemmtileg íþrótt sem fyrst og fremst er stunduð og iðkuð á Íslandi undir merkjum forvarnar- og uppeldisstarfs. Krafa er gert til leikmanna meistaraflokks að þeir séu öðrum til fyrirmyndar innan vallar sem utan og eru margir í þeim hópi sem taka hlutverk sitt alvarlega. Íþróttahreyfingin sinnir starfinu af alúð og elju hvarvetna um landið og hafa aðildarfélög KSÍ unnið gríðarlega öflugt starf víða. Mótahald er í miklum blóma og leggja sjálfboðaliðar starfinu mikið til á hverju ári. Sparkvellirnir um landið hafa einnig stuðlað að almennri hreyfingu og lýðheilsu.   Ríkir sátt um afgreiðslu málsins?   Hvernig sem á umrætt mál er litið þá er það og afgreiðsla þess á skjön við hið góða starf sem unnið er í aðildarfélögum KSÍ um land allt.   Ef svo er þá þarf væntanlega ekki að ræða þetta mál frekar. Ég efast hins vegar um að sátt ríki um málið og niðurstöðu þess. En ef engar raddir heyrast frá foreldrum, iðkendum, stjórnum aðildarfélaga og öðrum má sjálfsagt túlka þögnina sem samþykki.   Að kaupa sér aðgang að nekt og líkama annarrar manneskju á ekki að viðurkennast í vinnu- eða frítíma starfsfólks knattspyrnusambands sem kennir sig við uppeldi, forvarnir og æskulýð.   Það er forkastanlegt af fjármálastjóranum, sem var fulltrúi KSÍ og á vissan hátt fulltrúi þjóðarinnar á erlendri grundu að blanda vinnuferð sinni saman við veru á strípistað og nektabúllu. Svo ekki sé talað um að veifa korti sambandsins í því samhengi.   Ályktun Prestastefnu 2006   Afsökunarbeiðni stjórnarinnar og fyrirhuguð gerð siðareglna er í besta falli skref í rétta átt, en í samhengi þessa máls útúrsnúningur og leið til að takast ekki á við málið. Prestastefna kirkjunnar 2006 ályktaði um hugsanleg tengsl vændis og HM í knattspyrnu sem haldið var í Þýskalandi það ár. Þarlendir aðilar staðfestu grun um innflutning vændiskvenna frá fyrrum A-Evrópu til að svara þeim ,,markaði” sem fylgdi knattspurnuveislunni. Prestastefna skoraði þá á stjórn KSÍ að tala skýrt gegn slíkum tengslum opinskátt og á sínum vettvangi og hvatti um leið sambandið til dáða í sínu mikilvæga starfi. Svör fyrrum formanns KSÍ Eggerts Magnússonar við áskoruninni og hvatningunni einkenndust af litlu öðru en skætingi. Mál fjármálastjórans sýnir fram á nauðsyn þess að taka af festu á málum sem þessum.   Endurskoðun á starfsvettvangi   Ef stjórn KSÍ og einstaklingar í æðstu embættum sambandsins eru ekki færir um að axla þá ábyrgð sem starfinu fylgir í sínum vinnutíma og einkalífi, til dæmis með því að vera þær fyrirmyndir sem sambandið getur stólað á, hljóta þeir aðilar að þurfa að endurskoða sinn starfsvettvang.