Vakin af værum svefni vanans

Vakin af værum svefni vanans

Það sem mér finnst skorta er samtal um þessi mál við trú- og lífsskoðunarfélög, skólastjórnendur og foreldra með það að markmiði að komast sameiginlega að ásættanlegri lausn.
fullname - andlitsmynd Guðrún Karls Helgudóttir
12. nóvember 2010

Nú eru hópar í samfélaginu sem vilja draga úr samstarfi trúfélaga og skóla og ég tel ýmislegt sem hægt er að ræða í þeim hugmyndum. Það getur verið erfitt að vera barnið sem fær ekki að taka þátt þegar skólinn fer í heimsókn í kirkjuna eða þegar presturinn eða djákninn kemur í heimsókn í leikskólann.

Skólinn er ekki staður fyrir trúboð. Trúboð á heima í kirkju en ekki í grunnskólum eða leikskólum. Um þetta er reyndar enginn ágreiningur og mörkin hafa verið að skerpast undanfarin ár að frumkvæði þjóðkirkjunnar. Ég skil þessa hópa því að mörgu leyti og mér finnst sitthvað gott í tillögum mannréttindaráðs en að sama skapi þykir mér sumt í tillögum þeirra bera vitni um þótta í garð kristni og þá sérstaklega þjóðkirkjunnar. En hvernig ætli hægt sé að vinna þetta svo að réttur barna sé tryggður og að foreldrar séu sáttir?

Hagsmunir barnanna hljóta alltaf að vera í fyrirrúmi. Ég efast ekki eitt augnablik um að skólar, leikskólar, öll trúar- og lífsskoðunarfélög, íþróttafélög, skátar, tónlistarskólar og öll þau er vinna með börn vilji hag barna sem bestan.

Margt kirkjunnar fólk hefur brugðist ókvæða við þessum tillögum mannréttindaráðs sem hér um ræðir enda upplifa mörg okkar tóninn í tillögunum sem yfirlætislegan. Reyndar veit ég ekki til þess að prestar séu hangandi á snerlinum í grunnskólum landsins og vilji komast inn til þess að berja börnin í höfuðið með Nýja testamentinu. Ég kannast heldur ekki við að það sé raunin í leikskólunum.

Það sem mér finnst skorta er samtal um þessi mál við trú- og lífsskoðunarfélög, skólastjórnendur og foreldra með það að markmiði að komast sameiginlega að ásættanlegri lausn. En raunin er sú að Siðmennt er eina lífsskoðunarfélagið sem kom að tillögugerðinni.

En hver veit nema það sem margir Íslendingar upplifa sem árás lítils hóps á kirkju og kristni sé það besta sem hefur komið fyrir kristni á Íslandi?

Nú er fólk allt í einu farið að tala um trú á annarri hverri kaffistofu og í fjölskylduboðum og skrifa í blöðin og blogga um trúmál og kirkju. Það getur ekki verið annað en gott. Kannski þurftum við, kristið fólk á Íslandi, að láta vekja okkur af værum svefni vanans.

Ég vona, trúi og bið þess að við þurfum ekki að óttast hugmyndir þessa hóps heldur verði þær einmitt til þess að styrkja trúfrelsi á Íslandi. Trúfrelsi er frelsi til trúar og trúleysis. Vonandi sprettur af þessu samtal sem kennir okkur að umgangast hvert annað af meiri virðingu hvaða lífsskoðun eða trú við höfum. Tölum saman af yfirvegun og með velferð barnanna okkar í huga. Samræða þeirra hópa er málið varða er lykillinn að farsælli lausn.