Náungasamfélagið

Náungasamfélagið

Kunningjasamfélagið er eitt af stóru vandamálunum sem Ísland glímir við í dag. Í kunningjasamfélagi ganga þau fyrir sem eru tengd okkur á einhvern hátt, á kostnað hagsmuna heildarinnar. Í kunningjasamfélagi skilgreinum við þau sem eru verð umhyggju okkar og góðra verka, eftir því hvernig þau tengjast okkur.
fullname - andlitsmynd Árni Svanur Daníelsson
08. febrúar 2010

Náungasamfélagið

Kunningjasamfélagið er eitt af stóru vandamálunum sem Ísland glímir við í dag. Í kunningjasamfélagi ganga þau fyrir sem eru tengd okkur á einhvern hátt, á kostnað hagsmuna heildarinnar. Í kunningjasamfélagi skilgreinum við þau sem eru verð umhyggju okkar og góðra verka, eftir því hvernig þau tengjast okkur. Við sjáum öll óréttlætið og óhagkvæmnina sem þrífst í skjóli kunningjasamfélagsins. Það er óréttlátt, því það útilokar suma frá því sem þeim ber. Það er óhagkvæmt vegna þess að sá eða sú rétta víkur fyrir þeim sem kemst áfram á tengslum. Þá fer heildin halloka.

Kunningjasamfélagið Ísland þarf að umbreytast. Það þarf að umbreytast yfir í náungasamfélag. Í náungasamfélagi njóta allir sannmælis og eru virtir, óháð hverjum þeir tengjast og hverjum þeir eru kunnir. Í náungasamfélagi sjáum við þarfir og hagsmuni hvers annars og virðum þau sem eru ólík og ókunn okkur. Náungasamfélagið viðurkennir að við erum öll á sama báti og gefur jöfn tækifæri.

Við sem búum á Íslandi þurfum að vinna saman að því að gera samfélagið okkar betra, mannvænna og sanngjarnara. Við þurfum að skipta gæðunum jafnt – og ekki láta ráða úrslitum hver sé kunningi okkar, heldur að hver og einn er náungi okkar. Það þýðir að við erum tilbúin að leggja á okkur að sjá til þess að aðrir – náungar okkar – hafi eitthvað til að bíta og brenna, að þeir geti leitað í öruggt skjól og að þeim sé sinnt þegar veikindi knýja dyra. Það þýðir að við leggjum þetta á okkur, án þess að ætlast til þess að fá eitthvað í staðinn fyrir okkur sjálf.

Með því að stíga skrefið frá því kunningjasamfélags til náungasamfélags, getum við vaxið saman og byggt sanngjarnt og réttlátt Ísland. Þangað eigum við að stefna.