Stóra saga

Stóra saga

Sumarleyfamyndum er smellt inn á facebook, Instagram, Flickr og aðra ljósmyndavefi. Svo eru ferðasögurnar. Þær sögur eru oft sjálfslýsingar og fara ekki á facebook. En svo er stóra sagan.

Hvað gerir þér gott á þessu sumri? Hvað verður þér til heilsu og eflingar. Hvað verður þér brauð lífs? Ef þú ert í leyfi, hvað gerir þú?

Votviðrið í okkar landshluta hefur áhrif á sumarleyfisstílinn og viðfangsefni fólks. Og áform fólks eru með ýmsu móti. Til er dugnaðarfólk sem ætlar sér mikil afrek í sumarleyfinu, að byggja sumarbústað, mála alla íbúðina og skoða líka Austfirðina? Við erum komin af vertíðarfólki, heyannafólki og tarnafólki og vinnusemi hefur löngum verið talin dygð á Íslandi. En að vinna í drep í sumarleyfi er ekki óumflýjanleg örlög. Að vinna er ekki tilgangur sumarleyfis.

Frí er fyrir fólk en fólk ekki fyrir frí. Að “gera” eitthvað í leyfi er stundum nauðsyn, en að “vera” er alltaf mikilvægt. Markmið með leyfi ætti að varða upplifun og reynslu. Frí ætti að þjóna hvíld, hleðslu, ástvinum, andríki og uppbyggingu. Þá verður frí þjónn hamingju.

Ferðasögur Sumarleyfamyndum er smellt inn á facebook, Instagram, Flickr og aðra ljósmyndavefi. Svo eru ferðasögurnar. Það merkilega er að þegar fólk segir sögur af ferðum sínum er það oft að tala um sjálft sig og líðan sína. Frásögurnar eru með margvíslegu móti og sumar hrífandi og rosalegar. Þegar þú segir ferðasögu þína - ertu þá að lýsa hver þú ert?

Sum segja töfrandi undrasögur, sem fylla eyrun af músík, nefið af lykt, heilann af myndum og hugann af fögnuði. Ímyndunaraflið fer á flug og við upplifum undur og stórmerki og fáum jafnvel nýja sýn á lífið.

Aðrir segja harmþrungnar ferðasögur: "Gistingin var frekar léleg, bílaleigubíllinn bilaði, kortinu var stolið, ferðaskrifstofan sveik margt, það ringdi allan tímann, frumstætt þjóðfélag og þjónustustigið lágt, ferðafélagarnir heldur drykkfelldir og hávaðasamir, flestir fengu matareitrun, og það er ágætt að vera kominn heim!"

Hver megnar að segja svo frá ferðum sínum að þær lifni og maður lifni við? Það er fólkið, sem hrífst og vill miðla, fólkið sem leyfir sér að upplifa til að verða snortið og gefur af örlæti sínu.

Segðu mér ferðasöguna - þá segir þú hver þú ert.

Ferðasögur fólks eru ekki aðeins um Finnland eða för yfir Fimmvörðuháls, heldur einnig frásögur þess um eigið líf. Fólk sem segir frá skemmtilegum ferðum og getur jafnvel séð í óveðri tilefni til tjáningar á dýpri veruleika, það er fólkið sem er tilbúið til að upplifa lífið á dýptina, tilbúið til að sjá margbreytileika eigin lífs. Þetta fólk er auðvitað ekkert fullkomið, það lendir í djúpum sorgum í lífinu eins og aðrir. Það verður fyrir sjúkdómum og missir líka, en það hefur í sér þessa aukavídd, þennan bónus að geta upplifað perlur á sorgarhafsbotni, ljósbrot í myrkri, augnablikshamingju í hremmingum, séð hið hlálega í grafalvarlegum aðstæðum - numið hið dýrlega í veröldinni.

Ferðasögur um líf Þau sem segja bara sorglega ferðasögu tjá stundum fremur depurð eigin lífs fremur en ferðar. Hvaða sögu segir þú af ferðum þínum? Staldraðu við og spyrðu þig um ástæður og samhengi. Sorglegar sögur þarf að segja, depurð þarf að tjá. En það er ekki heppileg leið til að leysa sálarháska að segja sorglega ferðasögu! Ferðasaga þín er sannleiksspegill lífs þíns. Ferðasaga fólks er eins og minningargrein um eigið líf!

Ferðasaga Guðs Svo er hin guðlega ferðasaga. Guð hefur sagt sögu um sig, sem á sér upphaf í elsku til þín, vilja til að ganga með þér á þinni för, á leið um mennskan móðurlíkama konu, uppvöxt í mannheimi, reynslu af þér og mér, mannkyni í gleði og sorg, gæsku og grimmd, og síðan að allar ferðasögur mannanna komu saman í krossi á hæð.

Ferð Guðs er ekki saga um lélegt hótel Jörð, töpuð kort og leiðinlega ferðafélaga, heldur um að lífið er gott, vonbjart og mikilfenglegt. Það er ferðasaga Guðs sem allar smásögur okkar mega ganga upp í. Ferðasaga Guðs er saga um gleði lífsins, að lífið er sterkara en dauðinn.

Ferðasaga Guðs er jákvæð, kraftmikil og um ríkidæmi lífsins. „Ég er brauð lífsins...“ segir í texta dagsins. Á ferð með Guði njótum við fæðu, gæða, brautargengis – brauð lífsins er fyrir líf og nægir okkur.

Hver ert þú? Hver er ferðasagan þín? Varpaðu henni upp í spegil hugans, segðu fólkinu þínu hver þú ert og hvað þú upplifir, og berðu svo söguna þína fram fyrir hinn mikla ferðafrömuð sem hefur tjáð þér sína sögu í fyllingu lífs - dauða og síðan lífs. Segðu mér ferðasögu þína og þá er ljóst hver þú ert.

Guð segir þér ferðasögu sína til að þú vitir hver Guð er. Og þú mátt ganga fram í messunni til brauðs og víns. Það er ferð sem Guð býður til og þar er tilefni upplifunar og ferðasögu. Mynd af þeirri ferð verður ekki smellt á facebook heldur er sagan undrasaga um faðmlag tíma og eilífðar, lífgun sálar og sagan um það verður endursögð í gleðisölum eilífðar. Saga þín verður saga Guðs.

Hugleiðing í Neskirkju 14.7.2013 – 7. sunnudagur eftir þrenningarhátíð.