Gegn fátækt og ranglæti

Gegn fátækt og ranglæti

Ástand þjóðmála og bágindi margra í íslensku samfélagi eru áskorun til okkar að feta í fótspor hans og vinna að framgangi réttvísinnar og standa með þeim sem hafa orðið fórnarlömb ranglætis.
fullname - andlitsmynd Kjartan Jónsson
13. maí 2010

Rúm Húgós

Þessa dagana láta yfirvöld til skarar skríða gegn sumum sem taldir eru helstu gerendur í þeirri atburðarrás sem leiddi til efnahagshruns íslensku þjóðarinnar með ómældu tjóni og sársauka fyrir almenning. Þessar aðgerðir gefa okkur von um að Ísland sé réttarríki í raun og veru og að engir séu hafnir yfir lögin, hvorki auðmenn né fólk í valdastöðum.

Fólki hefur stundum fundist að vitlaust hafi verið gefið í þessu þjóðfélagi þegar kemur að aðgangi að fjármunum bankanna. Okkur blöskrar þær háu upphæðir sem óprúttið fólk hefur getað sölsað undir sig af eigum almennings óáreitt. Réttlætið verður að ná fram að ganga í þessum málum, fyrr verður ekki sátt í íslensku samfélagi.

Kirkjan hefur löngum verið sökuð um að standa með valdastéttinni og hinum ríku. Því miður hefur það oft verið raunin. Jesús stóð með þeim sem áttu undir högg að sækja og talaði máli þeirra.

Ástand þjóðmála og bágindi margra í íslenku samfélagi eru áskorun til okkar að feta í fótspor hans og vinna að framgangi réttvísinnar og standa með þeim sem hafa orðið fórnarlömb ranglætis. Vinnum að því að láta réttlætið leiða til sáttar og endurreisnar hins íslenska samfélags því að Guði er umhugað um velfarnað þess.