Kýs biskup eftir sextíu ár í sóknarnefnd

Kýs biskup eftir sextíu ár í sóknarnefnd

Magnús Annasson er búinn að vera í sóknarnefnd í um sextíu ár og þar af formaður sóknarnefndar í 25 ár. Nú lýkur hann ferli sínum í sóknarnefnd Tjarnarkirkju á Vatnsnesi með því að kjósa biskup. Hann segir að þetta sé orðið alveg nóg hjá sér.
fullname - andlitsmynd Sigurður Árni Þórðarson
29. febrúar 2012

Magnús AnnassonMagnús Annasson er búinn að vera í sóknarnefnd í um sextíu ár og þar af formaður sóknarnefndar í 25 ár. Nú lýkur hann ferli sínum í sóknarnefnd Tjarnarkirkju á Vatnsnesi með því að kjósa biskup. Hann segir að þetta sé orðið alveg nóg hjá sér.

Fyrir skömmu fórum við sr. Guðni Þór Ólafsson, Melstað, í heimsókn til Magnúsar. Hann rifjaði upp fyrir okkur ýmislegt um kirkjulífið á Tjörn, mannlífið á Vatnsnesi og kynni sín af prestum og líka biskupum. Hann mundi margar vísitasíur, mundi eftir Ásmundi Guðmundssyni. Síðan hafði Sigurbjörn Einarsson vísiterað og svo taldi Magnús biskuparöðina inn í nútíma Karls biskups. Sigurbjörn hafði komið aftur - þá í einkaheimsókn. Magnús hafði verið í Tjarnarkirkju einn daginn þegar dyr voru opnaðar, maður kom inn og bauð góðan daginn. Hann þekkti komumann og fagnaði honum. Þar var Sigurbjörn kominn og hans fólk – á ferð um Norðurland. Það birti yfir Magnúsi þegar hann sagði frá.

Magnús talaði svo um Tjarnarkirkju, um þá merku presta Sigurð Norland og Róbert Jack, um gripi og altaristöfluna. Og svo væri nú nauðsynlegt að laga veggfóðrið á einum stað! Hann væri búinn að minna sitt fólk á það. Nú tækju aðrir við. Hann væri búinn með sinn tíma og vissi ekki hvort honum entist aldur til að kjósa í biskupskjöri sem er framundan. Ég vona þó, að hann og allir hinir kjörmennirnir kjósi því aukið lýðræði í kirkjunni er fagnaðarefni og mikilvægt að ný skref lánist vel.

Öll höfum við hlutverk í ríki Guðs í veröldinni. Magnús hefur skilað góðu dagsverki. Kirkjan á honum mikið að þakka og vert væri að orða hann kirkjulegri orðu við lok ferils hans. Mér var þakklæti í hug þegar ég gekk út frá Magnúsi Annassyni, þakklæti fyrir umhyggju hans fyrir velferð kirkjunnar, fyrir þolgæði hans og andlegt örlæti. Ný kynslóð axlar nú ábyrgð í kristnilífinu á Vatnsnesi og lagar líka veggfóðrið. Gott þú góði trúi þjónn og fyrirmynd. Við erum öll hlekkir í þjónustufesti kristni Íslands og heims.