Sterkt og gott samfélag lútherskra kirkna um allan heim

Sterkt og gott samfélag lútherskra kirkna um allan heim

Fyrsti stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins eftir 10 heimsþingið í Winnipeg síðasta sumar, var haldinn í byrjun haustsins í Genf. Alls eru 138 kirkjur í 77 löndum með samtals 65 milljónir meðlima í Lútherska heimssambandinu og sitja 48 kjörnir fulltrúar frá aðildarkirkjunum í stjórn sambandsins sem hittist árlega.
fullname - andlitsmynd Kristín Þórunn Tómasdóttir
11. nóvember 2004

Fyrsti stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins eftir 10 heimsþingið í Winnipeg síðasta sumar, var haldinn í byrjun haustsins í Genf. Alls eru 138 kirkjur í 77 löndum með samtals 65 milljónir meðlima í Lútherska heimssambandinu og sitja 48 kjörnir fulltrúar frá aðildarkirkjunum í stjórn sambandsins sem hittist árlega.

Á fundinum í Genf bar hátt umræða um skipulag og fjárhag sambandsins. Hinn þýskættaði Peter Stoll, sem fer með fjárreiður Lútherska heimsambandsins, kynnti í skýrslu sinni róttækar tillögur í átt að hagræðingu og aðhaldi í starfi sambandsins, sem m.a. lúta að auknu samstarfi deilda og ráða innan aðalskrifstofunnar í Genf og fækkun stórra funda. Út frá þessum tillögum spunnust miklar og líflegar umræður og var stjórnarfólk alltént sammála um að leita þyrfti nýrra leiða til að halda við því mikla starfi sem fram fer á vegum Lútherska heimssambandsins um víða veröld.

Þá var mikil vinna helguð markmiðssetningu í lífi og starfi Lútherska heimssambandsins fram að næsta heimsþingi, sem verður haldið árið 2010. Þingið í Winnipeg skilaði af sér löngum bálki af tilmælum og markmiðum sem kirkjunum þótti vert og brýnt að vinna að. Stjórninni var síðan falið að vinna frekar með þau og setja það allra mikilvægasta á oddinn. Niðurstaðan úr þeirri vinnu kemur fram í fjórum höfuðmarkmiðum sem þetta alþjóðlega samfélag lútherskra kirkna sér endurspegla köllun sína og tilgang.

Höfuðmarkmiðin fjögur eru:

1. Að styrkja hina lúthersku sjálfsmynd í samfélagi og boðun kirknanna. 2. Að standa við og dýpka samkirkjulegar skuldbindingar og styðja við samræður á milli trúarbragða. 3. Að bera vitni í kirkju og þjóðfélagi um Guði sem gerir heilt, endurreisir og réttir hlut þeirra sem órétti eru bornir. 4. Að hlusta á hvert annað og deila ábyrgð og gæðum með hvert öðru.

Þá var unnið að málefnum hinna ýmsu deilda og sviða innan sem Lútherska heimssambandið starfar eftir. Stjórnin skiptir með sér verkum eftir þessum nefndum og leggur síðan fyrir allsherjarsamkunduna þau mál sem hvert svið leggur til. Deildirnar sem Lútherska heimssambandið starfar eftir eru Þjónusta og hjálparstarf (Department of World Service), Guðfræði og menntun (Theology and Studies) og Trúboð og þróunarstarf (Mission and Development). Þá hafa eftirfarandi svið innan aðalskrifstofunnar nefndir til að vinna í: Samskipti og fjölmiðlun (Communication Services), Fjármál og stjórnun (Finance and administration), Mannréttindamál (International Affairs and Human Rights) og Samkirkjuleg samskipti (Ecumenical Affairs).

Á stjórnarfundinum í Genf var framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins, Dr. Ishmael Noko, frá Zimbabwe, endurkjörinn til næstu 7 ára. Helstu mannabreytingar aðrar á toppinum eru þær að Norðmaðurinn Dr. Kjell Nordstokke var valinn til að stjórna deild LH um Trúboð og þróunarstarf. Þá samþykkti stjórnin að Karin Achtelstetter, sem er yfirmaður samskiptamála hjá LH, gegni starfi aðstoðarframkvæmdastjóra frá og með næstu áramótum.

Margt annað var afgreitt af borði stjórnarinnar sem ekki er upptalið hér. M.a. má nefna að skipaður var vinnuhópur með fulltrúum allra heimshornanna sem á að vinna að því að safna gögnum um afstöðu kirknanna í málefnum hjónabandsins, fjölskyldunnar og kynlífs (sjá sérstaka frétt í Víðförla). Forseti Lútherska heimssambandsins, hinn bandaríski yfirbiskup Mark Hanson, sagði eftir fundinn að í hans huga væri það hið sterka og djúpa samfélag sem hann skynjaði í samveru og samstarfi kirknanna sem stæði upp úr, frekar en þær ákvarðanir sem voru teknar.

Lesa má nánar um stjórnarfund Lútherska heimssambandsins á heimasíðunni www.lutheranworld.org . Þar er líka að finna einstakar skýrslur og ræður sem þar voru fluttar. Næsti stjórnarfundur verður í byrjun september á næsta ári og er stefnt að því að hann verði í Jerúsalem í boði Evangelísk Lúthersku kirkjunnar í Palestínu og Jórdaníu. Kristín Þórunn Tómasdóttir er fulltrúi þjóðkirkjunnar í stjórn Lútherska heimssambandsins. Þar starfar hún í nefnd um samskipti og fjölmiðlun (OCS) og gegnir formennsku í þeirri nefnd.