Ótrúlegur stuðningur

Ótrúlegur stuðningur

Við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar erum mjög þakklát fyrir þann frábæra stuðning sem starf okkar fær úr öllum áttum. Mjög margir leggja sitt af mörkum, einstaklingar greiða valgreiðslur sem við sendum í heimabanka, leggja inn á söfnunarreikninga, hringja í söfnunarsíma og kaupa gjafabréfin okkar á gjofsemgefur.is.
fullname - andlitsmynd Bjarni Gíslason
11. mars 2015

Við hjá Hjálparstarfi kirkjunnar erum mjög þakklát fyrir þann frábæra stuðning sem starf okkar fær úr öllum áttum. Mjög margir leggja sitt af mörkum, einstaklingar greiða valgreiðslur sem við sendum í heimabanka, leggja inn á söfnunarreikninga, hringja í söfnunarsíma og kaupa gjafabréfin okkar á gjofsemgefur.is. Fyrirtæki taka mjög vel í styrkbeiðni okkar, bankar, stéttarfélög, sóknir og samtök leggja fram umtalsverða fjármuni. Heildarsöfnunarfé síðustu þrjá mánuði er samtals 70 milljónir króna þar af eru 37 milljónir til innanlandsstarfsins og 33 milljónir til verkefna erlendins.

Markmið starfsins, heima og að heiman, er að hjálpa fólki og samfélögum að finna eigin lausnir á vanda sem að þeim steðjar og fræða um rétt og skyldur einstaklinga, samfélags og stjórnvalda. Nálgun stofnunarinnar felst í að efla fólk til áhrifa (valdefling) með formlegri og óformlegri skólagöngu, ýmisskonar fræðslu, þjálfun og efnislegri aðstoð. Hún er réttindamiðuð og sniðin til þess að byggja upp þekkingu og færni fólks svo þróun verði sjálfbær og utanaðkomandi aðstoð óþörf. Hjálparstarfið veitir þannig aðstoð til sjálfshjálpar og virkjar skjólstæðinga til þátttöku í öllu ferlinu. Stuðningur er veittur á grundvelli þarfar án tillits til trúar, þjóðernis, kyns, fötlunar, kynhneigðar, stéttar né nokkurs annars sem er ólíkt með fólki.

Sá mikli stuðningur sem starfið nýtur ber vott um að margir eru sammála þessum markmiðum hvort heldur sem er í þróunarsamvinnuverkefnum erlendis t.d. í Eþíópíu þar sem fleirum er tryggður aðgangur að hreinu vatni eða í starfinu á Íslandi þar sem t.d. er veittur tímabundinn efnislegur stuðningur með inneignarkortum í matvöruverslunum og efnaminni framhaldsskólanemendur fá styrk til greiðslu skólagjalda. Orð unglingsstúlku á Indlandi sem hefur fengið stuðning til skólagöngu gætu allt eins verið orð ungmennis á Íslandi sem hefur fengið stuðning til náms: „Fjölskylda mín er af lægstu stétt og mjög fátæk, ég hefði aldrei náð að vera svona lengi í skóla án þess stuðning sem ég fæ. Með menntuninni hef ég miklu betri möguleika en foreldrar mínir, kannski verð ég læknir“.

Spakmæli frá Keníu segir: Eitt góðverk leiðir af sér annað“. Það er nákvæmlega það sem gildir um stuðninginn og starfið.