Vetrarfar yfir vordögum

Vetrarfar yfir vordögum

Mikið höfum við að þakka íslendingar. Viðbrögð heilbrigðisyfirvalda virðast lágmarka þann skaða sem cóvidfaraldurinn veldur.
fullname - andlitsmynd Þorbjörn Hlynur Árnason
03. apríl 2020

Mikið höfum við að þakka íslendingar. Viðbrögð heilbrigðisyfirvalda virðast lágmarka þann skaða sem cóvidfaraldurinn veldur.  Þar á bæ er unnið eftir faglegum aðferðum og heilbrigðri skynsemi.  Hvergi reynt að fegra aðstæður; varnaðarorðin eru ströng en líka framsett af virðingu og tillitssemi. 

Framganga þeirra sem miðla upplýsingum og standa í brúnni vekur traust og tiltrú. Vitaskuld er óvissa yfir; hvað verður nákvæmlega veit enginn fyrir víst og uggur og ótti naga. Hvernig verður morgundagurinn?  Hvernig líður okkur á páskadag, eða sumardaginn fyrsta?

Í Bandaríkjunum stefnir í þjóðarharmleik vegna faraldursins. Guð gefi að verstu spár um mannfall gangi ekki eftir.  En strúturinn stakk hausnum í sandinn.  Engin bönd virðast á sjúkdómnum og fát og fum einkenna viðbrögð þeirra sem ábyrgð bera.

Alríkisstjórnin ber mikla ábyrgð á þeim dökku horfum sem nú blasa við.  Það ríki sem eyðir mestum fjármunum allra í hergögn, ævintýralegum upphæðum, er vanbúið til að mæta farsótt – allt vantar til alls - og setur þegna sína út á gaddinn.

Þetta ætti svo sem ekki að koma á óvart. Peningaöflin sem ráða bandarísku samfélagi hafa sett mennsku sína á ruslahauginn. Þeir ofurríku kæra sig kollótta um afdrif þeirra sem lítið hafa.  Gróðaglampinn blindar sýn á réttlæti og mannúð.  Sjúkratryggingar, velferðarkerfi í rúst. Hinir efnaminni og fátæku hafa ekki efni á læknisþjónustu.  Veikur máttu ekki verða; það þýðir tekjutap eða atvinnumissi því almannatryggingar eru bágar.

Viðbrögð stjórnvalda voru lengst af fálmkennd, einkennd af afneitun og að kenna öðrum um; viðvaranir hundsaðar.   Viðspyrna kom of seint.  Kínverska pestin segir forsetinn, það sjálfhverfa furðutól sem er gjörsamlega vanhæfur til alls nema skara eld að eigin köku, svívirða fólk og einkum konur.

Honum fannst að þetta væri bara ómerkilegt kvef sem hyrfi fljótt.  Og fyrst honum fannst það þá var það rétt. Hvernig er hægt að vera svona vitlaus, spyrja margir. Og hvernig má það vera að svo margir séu fúsir í heimskudans hans?

Í lofsöng Maríu segir: „ Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað. Valdhöfum hefur hann steypt af stóli og upp hafið smælingja, hungraða hefur hann fyllt gæðum en látið ríka tómhenta frá sér fara.“ ( Lúkas 1.51 – 53 )

Það er leiðtogakreppa í Bandaríkjunum.  Ekki er þó rétt að alhæfa um bandarísk stjórnvöld.  Ríkisstjórarnir margir, til að mynda Andrew Cuomo í New York tala og starfa eins og leiðtogum ber, skilja þörfina og lýsa áhyggjum yfir þeim hamförum sem við blasa; gera allt sem unnt er til að bjarga því sem bjargað verður.

Þegar upp verður staðið og staðreyndir liggja fyrir um afleiðingar faraldursins í Bandaríkjunum er víst er að það verður slegist um rétta útgáfu af sannleikanum.   Sannleikann má hanna, framleiða, selja og kaupa.  Hvað er sannleikur?

En við á okkar litla landi getum að lyktum vonandi þakkað og sagt að yfirvöld hafi brugðist rétt við í ótrúlega flóknum og snúnum aðstæðum. Vonandi getum við líka sagt að heilbrigðisþjónusta og velferðarkerfi hafi reynst vel og staðist þungt próf.  Styðjum okkar góða fólk sem leggur sig að veði svo við fáum að líta nýja dagsbrún vonglöð og styrk.