Sálmabók

1. Ó, Guð vors lands

Lofsöngur

1 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð!
Vér lofum þitt heilaga, heilaga nafn!
Úr sólkerfum himnanna hnýta þér krans
þínir herskarar, tímanna safn.
Fyrir þér er einn dagur sem þúsund ár
og þúsund ár dagur, ei meir,
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.
:,: Íslands þúsund ár, :,:
eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.

2 Ó, Guð vors lands! Ó, lands vors Guð!
Vér lifum sem blaktandi, blaktandi strá.
Vér deyjum ef þú ert ei ljós það og líf
sem að lyftir oss duftinu frá.
Ó, vert þú hvern morgun vort ljúfasta líf,
vor leiðtogi' í daganna þraut
og á kvöldin vor himneska hvíld og vor hlíf
og vor hertogi' á þjóðlífsins braut.
:,: Íslands þúsund ár :,:
verði gróandi þjóðlíf með þverrandi tár
sem þroskast á Guðs ríkis braut.

T Matthías Jochumsson 1873, 1874 – Vb. 1912
Lofsöngur
L Sveinbjörn Sveinbjörnsson 1874 – BÞ 1912
Eldra númer 516
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun Sálm. 90

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is