Sálmabók

16a. Lífið gefur Guð

1 Lífið gefur Guð, í ljósi býr hann,
líta fær það enginn né skilja það kann.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
:,: fæddur er sem Maríu lítill son. :,:

2 Bjarma slær á tinda, það birtir á jörð,
barn er lagt í jötu og dýr standa vörð.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
:,: fæddur er sem Maríu lítill son. :,:

3 Hjarðmenn fyllast undrun við englanna söng,
eilífðar skín ljósið í myrkranna þröng.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
:,: fæddur er sem Maríu lítill son. :,:

4 Krjúp við jötu barnsins, Guðs kristni í heim,
kom í englaskarann og fagna með þeim.
Guð þó finn ég hér, frelsi, líf og von,
:,: fæddur er sem Maríu lítill son. :,:

5 Dýrð sé þér, ó, Guð, í himnanna hæð,
í heiminn að þú komst í fátækt og smæð.
Guð nú finn ég hér, frelsi, líf og von,
:,: fæddur er sem Maríu lítill son. :,:

T Margareta Melin 1969 v. 1 og 5 – Kristján Valur Ingólfsson 1975, 1995 – Vb. 2013
Gud bor i ett ljus
L Hjálmar H. Ragnarsson 1995 – Vb. 2013
Eldra númer 810
Eldra númer útskýring T+L
Biblíutilvísun 1. Tím. 6.16

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is