Sálmabók

216. Mikli Drottinn, dýrð sé þér

1 Mikli Drottinn, dýrð sé þér,
dásemd þína' um aldaraðir
ásamt þínum englaher
allir lofa viljum glaðir,
falla þína fótskör á,
faðir, þína dýrð að sjá.

2 Lát þitt ríki lýsa vítt
löndin yfir frið að veita,
láttu fæðast lífið nýtt,
ljós þitt vorum hjörtum breyta,
láttu yfir lönd og höf
ljóma þína sigurgjöf.

3 Helgur andi, heiður þér
hver ein tunga' á jörðu færi.
Faðir Guð, vér þökkum þér,
þér og Jesú, bróðir kæri.
Ástar þinnar eilíft ljós
oss sé blessun, vörn og hrós.

T Ignaz Franz 1771 – Bernhard Paludan-Müller 1884 – Friðrik Friðriksson um 1895 – Vb. 1933
Großer Gott, wir loben dich
L Lüneburg 1668 – Vín 1774 – BÞ 1912
Großer Gott, wir loben dich
Eldra númer 29
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is