Sálmabók

220. Lofgjörð, já, lof ég segi

1 Lofgjörð, já, lof ég segi,
lifandi Drottinn, þér
á helgum hvíldardegi
hver enn nú birtist mér.
Þín hjartagæskan hreina
hlífði mér vel í nótt
frá ógnum allra meina,
angist, voða og sótt.

2 Umliðna viku alla
áhyggju fyrir mér barst
svo máttu' ei mein til falla,
mildur og góður varst.
Ei hefndir illsku minnar
oft þó ég styggði þig,
naut ég því náðar þinnar,
nákvæm var hún við mig.

3 Ó, hvað skal sál mín segja
sjáandi þína náð.
Ei má hún yfir því þegja,
annað er betra ráð,
hjarta, mál, hold og andi,
hugur og allt mitt sinn
syngi nú samfagnandi:
Sé þér lof, Drottinn minn.

T Hallgrímur Pétursson, 1730 – Sb. 1972
L Melchior Teschner 1613 – Ssb. 1936
Valet will ich dir geben
Sálmar með sama lagi 221
Eldra númer 444
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is