Sálmabók

225. Úr erli dagsins inn ég geng

1 Úr erli dagsins inn ég geng.
Þá opnast faðmur þinn.
Ó, slá þú hjartans hörpustreng
og hugga anda minn!

2 Ég heyri, Jesú, heilagt orð
svo hlekkir falla af mér
og nýt þess við þitt nægtaborð
að náðin gefins er.

3 Í brauði og víni birtist þú.
Þinn bikar fullur er.
Veit huga mínum hreina trú
sem himin Drottins sér.

4 Lát hverfa heimsins hryggð og synd
svo hjartað öðlist frið.
Í trú sem enn er óljós mynd
Guðs elska blasir við.

5 Gjör, Kristur, hjartað heilt í trú
er handa sér ei skil.
Í kápu' úr skýjum kemur þú
og kallar dómsins til.

T Hjörtur Pálsson 2005 – Vb. 2013
L Kjell M. Karlsen 2008 – Vb. 2013
Snehvit er natten, klar og kold
Eldra númer 886
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is