Sálmabók

228. Drottinn Guð, hve gott að vakna

1 Drottinn Guð, hve gott að vakna
glöð og frísk til starfs í dag.
Þín er jörðin, þitt er lífið,
þín hver stund og líka ég.

2 Þú ert Guð og þú einn ræður,
þig ég bið að gá að mér.
Liprar hendur, hraustir fætur
hjálpað geta sjálfsagt þér.

3 En þó hafi hönd og fótur
heldur lítinn mátt í sér
og þótt augað ekki sjái
ætíð vil ég þjóna þér.

4 Góði faðir, lát mig lifa
líkar, meir sem sonur þinn.
Kenn mér þekkja rétt frá röngu,
ratað svo fær hugur minn.

T Margareta Melin 1969 v. 1, 2, 4 – Kristján Valur Ingólfsson 1975, 2012 – Vb. 2013
Tack, min Gud, för att jag vaknar
L Torgny Erséus, 1972 – Vb. 2013
Tack, min Gud, för att jag vaknar
Eldra númer 933
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is