Sálmabók

240. Veit mér náð að vaka og stríða

Veit mér náð að vaka' og stríða,
vinna trúar sigurinn,
þínum vilja helgum hlýða,
hreinan geyma lærdóm þinn
uns ég lít þitt auglit blíða
í Guðs ríki, Jesú minn.

T Guðmundur Gísli Sigurðsson – Sb. 1871
L John Goss 1869 – Sb. 1997
LAUDA ANIMA / Praise, My Soul
Sálmar með sama lagi 231 576
Eldra númer 368
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is