Sálmabók

244. Ó, Guð, þín náð vort geymi láð

Ó, Guð, þín náð vort geymi láð
og gæti landsins barna,
veit hjálp og lið, veit heill og frið
og hrjáðum skjóls ei varna,
lát eflast dyggð, lát blómgast byggð,
lát blessun allt oss færa,
þíns sonar borð og sannleiksorð
lát sálir endurnæra.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Andreas P. Berggreen 1825 – PG 1861
I Glans for Herrens Throne staaer
Eldra númer 530
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is