Sálmabók

266. Um hann sem ríkir himnum á

1 Um hann sem ríkir himnum á
og hjálp oss veitir sína
allt syngi lof er lofa má
og láti þökk ei dvína.
Á mönnum þóknun hefur hann,
af hæstri náð þeim friðar ann
og lætur ljós þeim skína.

2 Guð faðir, lof og þökk sé þér
er þín vilt börn oss kalla
og veikum styrk og vörn oss lér
og viðreisn þeim er falla.
Þín viska, náð og vald er hátt,
þú vægir oss þótt hrópleg þrátt
oss hendi hrösun alla.

3 Ó, Jesú, Guðs hinn góði son
er gjörðist bróðir manna
svo eilífs lífs oss veittist von,
þú virtist dauðann kanna.
Ó, dýrð sé þér, vort ljós og líf,
ó, lof sé þér, vor stoð og hlíf,
þú líknarlindin sanna.

4 Guð helgur andi, huggun trú,
þín hjálp við oss ei linni,
þér stað í vorum brjóstum bú
og blessun krýn oss þinni.
Vor hjörtu ljós og frið lát fá
og freisting þegar ræðst oss á
gef sérhver sigur vinni.

T 2. öld – Nicolas Decius 1523 – Joachim Slüter 1525 v. 4 – ME 1555 – GJ 1558 – Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
Allein Gott in der Höh sei Ehr
L 10. öld – Nicolaus Decius 1523 – Schumann 1539 – Gr. 1594
Allein Gott in der Höh sei Ehr
Sálmar með sama lagi 265
Eldra númer 221
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is