Sálmabók

286. Guð sem skapað hefur heiminn

1 Guð sem skapað hefur heiminn,
himin, jörð og mannfólkið,
gefur okkur lífið, ljósið,
líka öllu heldur við.
Allt hið góða’ um veröld víða
veldi sýnir skaparans.
Hann er faðir okkar allra,
einnig ég er barnið hans.

2 Jesús, Guðs hinn góði sonur,
gerðist maður, kom á jörð
til að lækna, til að hugga
tók hann á sig kjörin hörð.
Lagði veginn heim til himins,
hann á krossi dauðann vann.
Jesús segist vilja vera
vinur minn. Ég trúi’ á hann.

3 Helgur andi alla daga
er að hjálpa vinum hans
svo þeir geti sáttir lifað
samkvæmt vilja frelsarans.
Boðin hans í Biblíunni
benda mér á réttan veg.
Mínar bænir hann og heyrir,
honum lofgjörð færi ég.

T Eyvind Skeie 1980 – Gunnar M. Sandholt 1986
Gud har laget hela jorden (... laga heila jorda)
L Trond H.F. Kverno 1973
Gud har laget hela jorden (... laga heila jorda)

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is