Sálmabók

297. Tunga mín af hjarta hljóði

1 Tunga mín af hjarta hljóði
helgan leyndardóm um þann,
líkam Krists og blessað blóðið
bót sem öllum heimi vann,
konungs þjóða þá hins góða
það á krossi' úr æðum rann.

2 Oss var gefinn, oss var fæddur
öllum helgri meyju af,
meðan hér var holdi klæddur
heimi náðarorðið gaf,
ævi sína svo lét dvína.
Sjá hér Drottins kærleiks haf.

3 Síðstu nótt, þá sat að borði
sjálfur Kristur bræðrum með
lögmáls gjörla eftir orði –
engin máltíð dýrri' er séð –
höndum hreinum sínum sveinum
sig til fæðu gefa réð.

4 Hold í brauði, blóð í víni
bauð sitt væri Drottinn kær.
Miskunn slík þótt manna' ei skíni
myrkum skilning, trúum vær.
Trúin eina hjarta hreinu
huggun, gleði' og styrkleik fær.

5 Helgidóm svo háan allir
heiðra skulum alla tíð.
Gamlar lögmálsfórnir falli
fyrir Drottins nýjum sið.
Trúin mæta best má bæta
brestinn skilnings kristnum lýð.

6 Sönnum Guði, son getanda,
syni getnum fyrir' upphaf,
huggaranum, helgum anda,
hinum tveim sem kemur af,
æ skal syngja sérhver tunga
sanna vegsemd, dýrð og lof.

T Thomas Aquinas 13. öld – Sb. 1589 – Stefán Thorarensen – Vb. 1861
Pange Lingua
L John F. Wade 1743 – Luxemburg 1768 – Sb. 1871
ST. THOMAS (HOLYWOOD) / PANGE LINGUA
Sálmar með sama lagi 496a 668a
Eldra númer 228
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is