Sálmabók

305. Hér er heilög jörð

1 Hér er heilög jörð, Guðs náðar borð.
Hér oss birtist Drottins máttarorð.
Myrkrið þokar, tindrar trúarsól.
:,: Guð er einn af oss við þetta borð. :,:

2 Engin fjarlægð, ekkert djúp né gjá,
ekkert hulið, Guð er okkur hjá.
Tíminn hverfur, tengist himinn jörð.
:,: Guð er einn af oss við þetta borð. :,:

3 Hver fær skilið krafta Guðs og náð,
kærleik hans og fórn í lengd og bráð?
Lausnarorðið leysir þjáða sál.
:,: Guð er einn af oss við þetta borð. :,:

4 Gríman fellur, græskulaus hver sál
gengur fram að Drottins fórnarskál.
Óttinn hverfur, angist skortir mál.
:,: Guð er einn af oss við þetta borð. :,:

5 Nálægð, birta, ekki spurt um auð,
einföld máltíð, vín og daglegt brauð.
Himnesk veisla haldin jörðu á.
:,: Guð er einn af oss við þetta borð. :,:

T Robert J. Stamps 1971 – Anders Frostenson 1974 – Þórhallur Heimisson 2010
In Christ there is a table set for all / Gud är en av oss vid detta bord
L Robert J. Stamps 1971 – Vb. 2013
CENÉDIUS / In Christ There Is a Table Set for All
Sálmar með sama lagi 304

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is