Sálmabók

360. Konungur lífsins kemur hér til sala

1 Konungur lífsins kemur hér til sala,
kveður til fylgdar börnin jarðardala,
undan þeim fer hann, friðarmerkið ber hann,
frelsari er hann.

2 Fermingarbarn, til fylgdar þig hann krefur,
fegurstu kosti eilífs lífs hann gefur,
sakleysið verndar, sorg í gleði breytir,
sigurinn veitir.

3 Styrki þig Guð að velja veginn rétta,
viskan og náðin sveig úr rósum flétta,
undan þér fer hann, friðarmerkið ber hann,
frelsari er hann.

T Friðrik Friðriksson, 1907 – Sb. 1945
L Bjarni Þorsteinsson 1912
Eldra númer 258
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is