Sálmabók

362. Ég hef þér heitið, Jesús

1 Ég hef þér heitið, Jesús,
að hlýða’ og fylgja þér.
Þú, vinur, bróðir bestur,
þitt boð sé heilagt mér.

2 Ég vil ei frá þér víkja,
þú veitir styrk og lið.
Ég ekkert þarf að óttast
ef ertu mér við hlið.

3 Ég hef þér heitið, Jesús,
því heit þitt gafstu mér.
Ó, láttu líf mitt verða
til lofs og dýrðar þér.

T Sigurjón Guðjónsson – Sb. 1972
L Melchior Vulpius, 1609 – Vb. 1976
Christus der ist mein Leben
Eldra númer 259
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is