Sálmabók

364. Æskunnar ljómi

Nær en við höldum

1 Æskunnar ljómi, undrun og kraftur,
ólgan í blóðinu, rauðasta rós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:

2 Leitandi hugur, lífið sem bíður,
löngun til afreka, verðskuldað hrós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:

3 Stöndum við heitið, staðföst í trúnni,
stefnunni fylgjum til lands eða sjós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:

4 Fermingardagur, framtíðin bjarta,
fljótið sem streymir í ævinnar ós.
:,: Nær en við höldum er heimsins ljós. :,:

T Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson 2010
L Sigurður Flosason 2010

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is