Sálmabók

367. Vor Guð, í Jesú nafni nú

1 Vor Guð, í Jesú nafni nú
hér nálgast þig í von og trú
þín börn á brúðkaupsdegi.
Ó, heyr þau biðja bljúg um náð
og blessun þína' og hjálparráð
og leiðsögn lífs á vegi.
Faðir, faðir,
vík ei frá þeim, ver þú hjá þeim,
veit þau finni
gleði' og frið í gæslu þinni.

2 Lát hjúskap þeirra helgast þér,
í hjörtum þeirra máttkur ver
með þínum ástaranda,
lát sálir þeirra samtengjast
í sönnum hjónakærleik fast
og heitorð stöðug standa.
Faðir, faðir,
veg þinn fetað veit þeim geta,
veit þau unni
heitt þér æ af hjartans grunni.

T Helgi Hálfdánarson – Sb. 1886
L Philipp Nicolai 1599 – Sb. 1619
Wie schön leuchtet der Morgenstern
Sálmar með sama lagi 144 62
Eldra númer 263
Eldra númer útskýring T+L

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is