Sálmabók

369. Nú leikur blær um lífsins vor

1 Nú leikur blær um lífsins vor
og ljóma slær á gengin spor
er Drottinn blessar stað og stund,
við stefnum hingað á hans fund.

2 Í von um ást er vaki sönn
og veiti gleði' í hvíld og önn.
Þú, Drottinn, verndar heilög heit
og hjónabandsins vígða reit.

3 Við eigum hvort hjá öðru skjól
og okkur hlýjar lífsins sól.
En annað ræðst af okkur tveim,
að efla, byggja lítinn heim.

4 Og heimur sá er okkar allt
er auðgar bæði hlýtt og svalt.
Því allt mitt líf þú átt með mér
og allt þitt líf ég á með þér.

5 Við lútum Kristi kærleikans,
við krjúpum hljóð í nafni hans
sem aldrei sínum börnum brást
en blessar þeirra tryggð og ást.

T Hjálmar Jónsson 2004
L Marteinn H. Friðriksson 2004

Deila sálmi

Ábendingar til sálmabókarnefndar má senda á salmabok@kirkjan.is